[Gandur] Loftslagsbreytingar og framtíðin

Ágúst Ó. Georgsson agust at thjodminjasafn.is
Tue Oct 23 15:18:04 GMT 2018


Loftslagsbreytingar og framtíðin

Þjóðminjasafn Íslands sendir nú út spurningaskrá með heitinu "Loftslagsbreytingar og framtíðin" í samvinnu við þjóðháttasöfn í Noregi og í Svíþjóð. Með spurningaskránni óskar Þjóðminjasafnið eftir liðsinni almennings við að safna upplýsingum um afstöðu fólks til loftslagsbreytinga af mannavöldum, hvaða áhrif þær hafa á líf þess og hvernig það ímyndar sér framtíð með eða án loftslagsbreytinga.


Spurningaskránni er svarað á netinu með því að smella á þennan tengil: http://www.sarpur.is/Spurningaskra.aspx?ID=1877071 . Þar er jafnframt að finna skriflegar leiðbeiningar. Einnig er mögulegt að óska eftir að fá senda prentaða spurningaskrá eða að svara í tölvupósti.

Umræður um loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa lengi verið í sviðsljósinu og kannski aldrei meira en núna. Hnattræn hlýnun getur haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir allt líf á jörðinni, samfélög manna og daglegt líf, en samkvæmt rannsóknum á veðurfari eru loftslagsbreytingar af mannavöldum nú þegar til staðar.



Spurningaskráin er liður í þjóðháttasöfnun Þjóðminjasafns Íslands sem staðið hefur óslitið frá árinu 1960 og hafa flest svörin verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn sem hægt er að skoða á vefslóðinni http://www.sarpur.is/ .

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 530 2294 en einnig má senda tölvupóst á agust at thjodminjasafn.is<mailto:agust at thjodminjasafn.is>.




More information about the Gandur mailing list