[Gandur] Atriði fyrir afmæli Félags þjóðfræðinga

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Tue Oct 2 13:57:28 GMT 2018


Nú styttist óðfluga í afmælisfögnuð Félags þjóðfræðinga á Íslandi sem að
haldinn verður laugardaginn 27. október á Árbæjarsafni! Þetta verður
heljarinnar fjör, gómsætur matur og drykkir og eitthvað sem ENGINN má missa
af!

Það verður nóg á dagskránni og ennþá að bætast við atriði!

Ef að ÞÚ hefur áhuga á að vera með stutt skemmtiatriði, tónlistaratriði,
gamanmál, dans, rímur, leikþátt, myndband, sagnaskemmtun, ræðu eða hvað sem
er skaltu hafa samband við okkur á felagthjodfraedinga at gmail.com eða á
Facebook síðu félagsins.

Skráning á viðburðinn hefst á netinu á morgun en miðinn kostar 3500 kr.
fyrir meðlimi félagsins og 4500 kr. fyrir aðra.

Fyrir hönd félags þjóðfræðinga,
Dagrún Ósk Jónsdóttir


More information about the Gandur mailing list