[Gandur] Geturðu hjálpað okkur að vekja athygli á grunnnámi í þjóðfræði á Facebook?

Valdimar Tr. Hafstein vth at hi.is
Wed May 24 22:09:33 GMT 2017


Kæru þjóðfræðingar,

Frestur til að sækja um grunnnám við HÍ rennur út eftir 12 daga, þann 5.
júní. Má ég biðja þau ykkar sem eru á Facebook um að deila og láta ykkur
líða við myndband frá deildinni sem gefur nokkur dæmi um ólík störf
þjóðfræðinga?

Færsluna má finna ofarlega á fésbókarsíðu Félagsvísindasviðs (næstefsti
póstur þegar þetta er skrifað) og heitir "Hvað gera þjóðfræðingar?"

Slóðin er hér:
https://www.facebook.com/Felagsvisindasvid/

Hjálpumst að við að hjálpa fólki að finna rétta hillu í lífinu!

Með bestu þökkum,
Valdimar



More information about the Gandur mailing list