[Gandur] Gamansemi Íslendinga á 18. og 19. öld - málþing laugard. 26. nóvember

Ólafur Rastrick rastrick at hi.is
Tue Nov 22 16:37:01 GMT 2016


Logo 2**

**

*Gamansemi Íslendinga á átjándu og nítjándu öld*

Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni

*Gamansemi Íslendinga á átjándu og nítjándu öld***

**

í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð,

_laugardaginn 26. nóvember 2016_.

Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15.

Flutt verða fjögur erindi sem hér segir:

Um kímni og kerskni, húmor og hlátur í íslenskum þjóðsögum

/Aðalheiður Guðmundsdóttir/
prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands

Gamansemi í kveðskap á átjándu öld og fyrri hluta nítjándu aldar

/Kristján Eiríksson/
rannsóknarlektor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, nú emeritus

*KAFFIHLÉ***

„Ég er að smíða hlandfor“: Um gamansemi Benedikts Gröndal

/Ármann Jakobsson/
prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands

Ljóðabréf Benedikts Gröndals til Sigríðar E. Magnússon

/Sveinn Yngvi Egilsson/
prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands

Fundarstjóri: /Kristín Bragadóttir/
doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands

Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur.

Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.

Í hléi býður félagið upp á kaffiveitingar.

Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu. Þeir verða síðar
aðgengilegir á heimasíðu félagsins,http://fraedi.is/18.oldin/

*Næstu málþing Félags um átjándu aldar fræði:***

Laugardaginn 11. febrúar 2017 heldur félagið málþing undir 
yfirskriftinni *Af náttúruvísindum á upplýsingaröld*. Erindi flytja 
Ágúst H. Bjarnason, Einar H. Guðmundsson, Henry Alexander Henrysson og 
Huginn Freyr Þorsteinsson.

**

Laugardaginn 29. apríl 2017 heldur félagið málþing í tilefni af tveggja 
alda ártíð ensku skáldkonunnar *Jane Austen* (1775–1817). Erindi flytja 
Alda Björk Valdimarsdóttir, Anna Agnarsdóttir, Guðrún Björk 
Guðsteinsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir.

-------------- next part --------------
_______________________________________________
Gammabrekka mailing list
Gammabrekka at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gammabrekka


More information about the Gandur mailing list