[Gandur] Fornminjar á Kjalarnesi

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Wed Feb 25 11:05:52 GMT 2015


Aðalfundi Sögufélagsins Steina á Kjalarnesi og erindi Margrétar B. Magnúsdóttur um fornleifar á Kjalarnesi  sem vera átti í kvöld 25/2 er frestað vegna veðurs.

Kær kveðja! Hrefna S. Bjartmarsdóttir
 
 
On Wednesday, February 18, 2015 14:23 GMT, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir <hsb3 at hi.is> wrote: 
 
> 
> Kæru félagar! 
> 
> Sögufélagið Steini á Kjalarnesi heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 25. febrúar nk. kl. 20 í Fólkvangi á Kjalarnesi (við hlið grunnskólans).
>  
> Erindi kvöldsins flytur Margrét Björk Magnúsdóttir meistaranemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Yfirskrift þess er: „Fornleifar á Kjalarnesi“ og er byggt á meistaraverkefni Margrétar. Megin markmið hennar er að fá yfirsýn yfir skráðar fornleifar á Kjalarnesi með því að greina þær í minjaflokka, sem búnir voru til og hugsaðir sem yfirflokkar fyrir Skráningarstaðla fornleifa Minjastofnunnar Íslands. Í erindinu verður sagt frá helstu niðurstöðum greininganna, rætt um fornleifaskráningu og mikilvægi hennar, og fjallað um einstakar fornleifar á svæðinu. 
>  
> Sbr. viðhengi! 
>  
> Kær kveðja, Hrefna S. Bjarmarsdóttir þjóðfr.
 
 




More information about the Gandur mailing list