[Gandur] ROMA-menning í sögu og samtíð - málþing og opnun ljósmyndasýningar miðvikudaginn 8. apríl

Ólafur Rastrick rastrick at hi.is
Tue Apr 7 16:53:19 GMT 2015



Málþing og opnun ljósmyndasýningar um ROMA-menningu í sögu og samtíð 
fara fram í Háskóla Íslands þann 8. apríl á alþjóðadegi ROMA-fólks. Að 
þinginu standa fræðasetrið Minority Studies Society Studii Romani við 
Háskólann í Sofíu í Búlgaríu og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í 
erlendum tungumálum, í samvinnu við MARK – miðstöð margbreytileika og 
kynjarannsókna við Háskóla Íslands.

Fræðasetrið Minority Studies Society Studii Romani við Háskólann í Sofíu 
í Búlgaríu og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við 
Háskóla Íslands eru meðlimir í campUSCulturae-samstarfsneti sex 
evrópskra háskóla um fjöltyngi og fjölmenningu. Þar er fengist við 
rannsóknir á barnabókmenntum og menningu barna, ásamt varðveislu 
menningar minnihlutahópa sem margir hverjir tala tungumál sem eiga í vök 
að verjast.

Málþingið verður haldið miðvikudaginn 8.apríl kl. 14-16 stofu 132 í 
Öskju í Háskóla Íslands og fer fram á ensku.

Dagskrá:

• Elena Maryshiakova, prófessor í þjóðfræði og formaður Studii Romani 
við Háskólann i Sofíu í Búlgaríu, og Vesselin Popov, prófessor í 
þjóðfræði við sömu stofnun og varaformaður Studii Romani: „Romani 
migrations from historical point of view.“

• Sofiya Zahova, lektor við búlgörsku vísindaakademíuna: „History of 
Romani literature in Europe.“

• Marco Solimene, nýdoktor í mannfræði við Háskóla Íslands: „Mobility, 
transnationalism and anti-Gypsyism.“

• Ionela Bogdan, doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands: „Leaving 
Home for Shantytown: Media Representations of Roma’s Dislocation from 
Coastei Street to Pata Rât.“

Að málþingi loknu, kl. 16:15, verður ljósmyndasýning opnuð í sýningarými 
Háskóla Íslands í kjallara Háskólatorgs þar sem búlgarski 
sagnfræðingurinn Mirella Decheva flytur stutt ávarp um sýningar á söfnum 
í Evrópu sem fjalla um ROMA-fólk. Einnig mun Gro-Tove Sandsmark, 
fulltrúi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í 
campUSCulturae-samstarfsnetinu, greina frá rannsóknum sem stundaðar eru 
innan þess og alþjóðlegri ráðstefnu campUSCulturae um barnabókmenntir og 
menningu minnihlutahópa sem haldin var við Háskóla Íslands í apríl 2013.

Ljósmyndasýningin stendur til 15. maí. Allir eru velkomnir.

Viðburðurinn er haldinn með styrk frá Menningaráætlun Evrópusambandsins.



-------------- next part --------------
_______________________________________________
Hugskot mailing list
Hugskot at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hugskot


More information about the Gandur mailing list