[Gandur] Bókafregn

Rósa rosat at hi.is
Wed Oct 15 10:31:37 GMT 2014


Ágætu þjóðfræðingar

Á næstunni er ætlunin að gefa út þjóðsagnasafn dr. Konrads Maurers, sem
ferðaðist um Ísland sumarið 1858, eins og kunnugt er, og safnaði meðal
annars þjóðsögum, sem hann gaf út á þýsku árið 1860 undir titlinum
Isländische Volksagen der Gegenwart. Áður höfðu íslenskar þjóðsögur aðeins
komið út í lítilli bók sem þeir Magnús Grímsson og Jón Árnason höfðu
safnað til. Maurer hafði sannarlega mikil áhrif á þjóðsagnasöfnun því m.a.
gerðist hann hvatamaður þess, að þeir félagar, Jón Árnason og Magnús
Grímsson, héldu áfram söfnun sinni og bauðst til að útvega útgefanda í
Þýskalandi. Efnisflokkun hans á íslenskum þjóðsögum hefur einnig orðið
fyrirmynd flestra útgefinna þjóðsagnasafna frá því safn hans kom út.

Margir telja, að óathuguðu máli, að Jón Árnason hafi þýtt eða endursagt
allar sögurnar úr safni Maurers, en því fer fjarri og í safni Maurers er
að finna sagnir sem hafa ekki birst annars staðar. Það var því löngu orðið
tímabært að þýða safn hans yfir á íslensku og það hefir Steinar
Matthíasson nú tekið sér fyrir hendur. Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur
við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ritstýrir bókinni og
skrifar inngang. Áætlað er að bókin komi út í nóvember 2014 hjá
Háskólaútgáfunni.

Áætlað er að bjóða þeim sem vilja skrá sig í ákskrift fyrir bókinni að fá hana á hagstæðu verði. Nánari upplýsingar síðar.



More information about the Gandur mailing list