[Gandur] Fyrirlestur í Þjóðminjsafni - 7. nóvember

"Kristín Einarsdóttir" kriste at hi.is
Tue Nov 4 13:37:40 GMT 2014



Jón Karl Helgason prófessors við íslensku- og menningardeild Háskóla
Íslands mun, föstudaginn 7. nóvember flytja fyrirlestur sem hann kallar
,,Þroskabraut Thors í bandarískum myndasögum."
 Jón Karl hyggst dusta rykið af nokkrum myndasögum sem birtust á árabilinu
1940 til 1960. Í þeim öllum er norræni þrumuguðinn í aðalhlutverki. Það
má færa rök fyrir því að þetta séu eiginlegir frumtextar fyrstu sögunnar
um Thor sem Marvel-fyrirtækið sendi frá sér árið 1962.

Fyrirlesturinn hefst kl. 12:00 og er lokið kl. 13:00




More information about the Gandur mailing list