[Gandur] Rónaganga 28. mars - Félag þjóðfræðinga

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Mon Mar 24 13:36:24 GMT 2014


Félag Þjóðfræðinga býður til rónagöngu föstudaginn 28. mars. Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur gengur um slóðir róna og annarra drykkjumanna í
miðbæ Reykjavíkur. Gangan hefst kl. 16:30 við Aðalstræti 6 og endar um kl.
18:30 á Arnarhóli. Góð hugmynd gæti verið að skunda saman á öldurhús
bæjarins eftir göngu að hætti umræddra.

Verð kr. 1.000 fyrir félaga í Félagi þjóðfræðinga en 1.500 fyrir aðra. Við
hvetjum alla til að ganga með Guðjóni um þessar slóðir og fræðast um
forfeður okkar og rónana.



More information about the Gandur mailing list