[Gandur] Félagsvist Félags þjóðfræðinga

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Thu Dec 5 11:11:35 GMT 2013


Föstudaginn 6. desember frá klukkan 20:00 og fram eftir kvöldi, fer fram
áður auglýst félagsvist á heimili Kristínar Einarsdóttur að Laugarnesvegi
60 (vinstri dyr, efri bjalla). Því miður er húsrúm ekki ótakmarkað og
þ.a.l. fá aðeins tuttugu áhugasamir pláss við spilaborðin - fyrstir skrá
sig, fyrstir fá. Í boði er heitt jólaglögg, ásamt piparkökum og mandarínum
og vinningar ekki af verri endanum. Þess má geta að félagsvist er af
mörgum talin vera forveri hraðstefnumótanna sem nú ryðja sér til rúms í
stefnumótamenningu landans og því einkar áhugaverð stúdía fyrir
þjóðfræðinga. Félagar í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi þurfa að greiða kr
1.000 við innganginn - aðrir kr. 1.500

Sendið tilkynningu um þátttöku á kriste at hi.is eða á facebook:
https://www.facebook.com/events/467437436710178/?ref_dashboard_filter=upcoming



More information about the Gandur mailing list