[Gandur] FW: Strengleikar: Dante og Snorri á fimmtudaginn

Gerður Halldóra Sigurðardóttir ghs4 at hi.is
Mon Oct 29 19:17:47 GMT 2012


 

 

From: Viðar Pálsson [mailto:vp at hi.is] 
Sent: 29. október 2012 19:14
To: undisclosed-recipients:
Subject: Strengleikar: Dante og Snorri á fimmtudaginn

 

Strengleikar - Miðaldastofa

 

Fimmtudaginn 1. nóvember kl. 16:15

422 Árnagarði

 

 

Gottskálk Jensson

 

flytur erindið

 

Dante og Snorri um margar þjóðtungur og eina málslist (grammatica) 




sem hann lýsir svo — og flytur á þjóðtungu vorri:

 

„Dante Alighieri skrifaði ritgerð sína Um kveðskap á þjóðtungu (De vulgari
eloquentia) á árunum 1302-1305. Ritgerðin er að mörgu leyti sambærileg við
nokkur íslensk verk frá sama tíma, einkum Snorra-Eddu og íslensku
málfræðiritgerðirnar, sem fylgdust snemma að í handritageymdinni og mynduðu
eitt kennilegt samhengi. Menningarleg tengsl Íslands og Ítalíu á hámiðöldum
hafa lítið verið skoðuð. Þó áttu ítalskar og íslenskar móðurmálsbókmenntir
sín klassísku skeið um svipað leyti, á 13. og 14. öld. Bókmenntir þessar
hafa auðvitað mikið verið rannsakaðar hvorar í sínu lagi en samanburði
þeirra undarlega lítið verið sinnt. Samhengi ítalskra og íslenskra
móðurmálsbókmennta er þó allnáið og augljóst, þegar farið er að skoða efnið
frá stærra sjónarhóli, þó ekki væri nema vegna ráðandi stöðu hinnar
rómversku og þar með ítölsku kirkju á íslenskum miðöldum. Flestir kannast
við að íslensk ritmenning eigi upphaf sitt í latnesku skólakerfi þessarar
kirkju en sennilega gera færri sér grein fyrir því að bókmenning Íslendinga
sleit aldrei tengslunum við upprunann. Í erindinu verða rakin athyglisverð
dæmi um bein tengsl milli ítalskra og íslenskra bókmennta á hámiðöldum en
aðallega verður fjallað um þær sameiginlegu forsendur sem liggja skrifum
Dantes og Snorra (með málfræðiritgerðunum) til grundvallar.“

 

Öl og vín á kostnaðarverði, en umræður og fróðleikur kostnaðarlaust.

Gottskálk Jensson er prófessor í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og
menningardeild Háskóla Íslands. Hann varði doktorsritgerð sína á sviði
fornaldarskáldsögunnar við Torontoháskóla 1997. Næstu tvö árin mun hann
rannsaka latínu í íslenskum miðaldahandritum sem Marie Curie prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla.

 

 

-- 
Viðar Pálsson, PhD, Research Fellow (Grantee), Lecturer
The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies
University of Iceland
Árnagarður at Suðurgata
101 Reykjavík, Iceland
Work: +354 525 4010
Cell: +354 820 7027


More information about the Gandur mailing list