[Gandur] Dagskrá Keltneska fræðasetursins á Vökudögum

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Fri Oct 26 11:39:46 GMT 2012


Kæru þjóðfræðingar :)

Ég sendi hér dagskrá hins Keltneska fræðaseturs á Akranesi sem eru hluti
af svonefndum Vökudögum þeirra Akurnesinga.

Í kvöld 26. október kl. 20:00 verður Sagnakvöld haldið á Safnasvæðinu á
Akranesi, í
Garðakaffi.

Laugardaginn 3. nóvember kl.15 verður á sama stað haldin fræðsuerindi er
snerta frændur vor Íra og Skota:

Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir keltneskufræðingur, Þorvaldur Friðriksson
fréttamaður og fornleifafræðingur og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
rithöfundur og tónlistarmaður verða með fræðsluerindi um Kelta, Íra og
Skota og áhrif þeirra á íslenska menningu að fornu og nýju.

Aðgangur er ókeypis á báða viðburðina. Sjá nánar í viðhengi!


Kær Kveðja Hrefna S. Bjartmarsdóttir þjóðfr.

Nánar um viðburði Vökudaga á
http://www.akranes.is/pages/mannlif/vokudagar-2012-dagskra/



More information about the Gandur mailing list