[Gandur] Fwd: Gerðuberg - Á slóðum Íslendingasagna á Stefnumótakaffi mið. 10. okt. kl. 20.

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Mon Oct 8 12:14:15 GMT 2012



Begin forwarded message:

> From: Margrét Valdimarsdóttir <Margret.Valdimarsdottir at reykjavik.is>
> Date: 8. október 2012 12:07:42 GMT+00:00
> To: Margrét Valdimarsdóttir <Margret.Valdimarsdottir at reykjavik.is>
> Subject: Gerðuberg - Á slóðum Íslendingasagna á Stefnumótakaffi mið. 10. okt. kl. 20.
> 
> Stefnumótakaffi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
> Miðvikudagkvöldið 10. október kl. 20-22
> Á slóðum Íslendingasagna – Emily Lethbridge
> 
> Á stefnumótakaffi októbermánaðar, miðvikudaginn 10. október kl. 20-22, segir Emily Lethbridge frá ferðalagi sínu um söguslóðir Íslendingasagna. Hugmynd Emily var að ferðast um Ísland og lesa allar Íslendingasögurnar „á réttum stöðum“. Ferðalagið hófst í janúar 2011 þegar Emily lagði ein af stað frá Bretlandi til Íslands með gamlan Land Rover sjúkrabíl. Hún ferðaðist um landið á sjúkrabílnum í næstum því eitt ár, en bíllinn var ekki aðeins faratæki heldur líka heimili hennar. Á Stefnumótakaffinu ætlar Emily að ræða um ferðalagið sitt, nefna nokkur atriði og nokkra staði sem henni þóttu merkilegastir og skemmtilegastir, og segja frá því hvert verkefnið fer í framtíðinni. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
>  
> Nánar má lesa um viðburðinn og Emily á heimasíðu Gerðubergs – sjá hér.
>  
> Kveðja
> Margrét :o)
>  
> Margrét Valdimarsdóttir, verkefnastjóri.
> Menningarmiðstöðin Gerðuberg
> Gerðubergi 3-5
> 111 Reykjavík
> Sími 575 7715 / 848 0683
> www.gerduberg.is
>  
> Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur
> Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur



More information about the Gandur mailing list