[Gandur] 4. íslenska söguþingið

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Tue May 22 22:50:19 GMT 2012


Fjórða íslenska söguþingið verðu haldið í húsakynnum Háskóla Íslands 7.-10.
júní 2012. Þessi þing eru orðinn fastur viðburður, fyrsta þingið var haldið
árið 1997, annað árið 2002 og hið þriðja árið 2006. Þingið nú þjónar sem
áður allt í senn sem vettvangur fyrir kynningu á niðurstöðum nýjustu
rannsókna í íslenskri sagnfræði, veitir yfirlit yfir stöðu þeirra nú og þar
er rætt um hvert stefnir í rannsóknum á sviðinu.

Þingið verður afar veglegt en í boði verða á þriðja tug málstofa um hin ýmsu
efni með yfir 90 fyrirlestrum. Ber þetta glöggan vott um öflugar rannsóknir
á hinum ýmsu sviðum íslenskrar sögu. Þingið verður líka óvenju alþjóðlegt í
þetta sinn, en Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands hefur boðið þremur
heimsþekktum sagnfræð¬ingum til þingsins, þeim Lindu Colley prófessor við
Princeton háskóla, David Cannadine, prófessor við Prince¬ton háskóla og
Geoff Eley, prófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum. Linda Colley
mun flytja Jóns Sigurðssonar fyrirlesturinn þetta árið. Þar að auki munu
tveir erlendir fyrirlesarar tala á opinni málstofu um Evrópumál, sem styrkt
er af Evrópustofu. Þetta eru þau Anne Katherine Isaacs, prófessor við
háskólann í Písa, og Anne Deighton, prófessor við háskólann í Oxford. Að
síðustu mun Karl-Erik Frandsen, lektor við Kaupmannahafnarháskóla, tala í
málstofu um sjúkdómafaraldra á fyrri tíð.

Ráðstefnugjald er 9.900 krónur og 4.900 fyrir háskólanema. Hægt er að skrá
sig á heimasíðu þingsins, www.akademia.is/soguthing en það má finna allar
helstu upplýsingar um þingið.

Stjórn Söguþings.





More information about the Gandur mailing list