[Gandur] Hádegisfyrirlestur fimmtudag!!

Eva Þórdís Ebenezersdóttir ethe3 at hi.is
Wed Feb 1 23:35:22 GMT 2012




> kæru þjóðfræðingar nær og fjær
>
>  Næsta fimmtudag mun Vilborg Davíðsdóttir kynna fyrir okkur MA rannsókn
> sína sem hún lauk síðasta haust.
>
> „An Dat´s de Peerie Story.“ Rannsókn og túlkun á sögnum tveggja
> Hjaltlendinga
>
>  Erindið er í fyrirlestarsal Þjóðminjasfns Íslands fimmtdaginn 2.febrúar
> kl. 12:10-13:00
>
> Sem fyrr er fyrirlesturinn í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og öllum
> opinn og að kostnaðar lausu.
>
>
> Útdráttur:
> Í þessari 60 eininga meistarprófsritgerð eru sagnasjóðir Brucie Henderson
> (1891-1977) og Toms Tulloch (1914-1982) frá Yell á Hjaltlandi teknir til
> rannsóknar og túlkunar. Leitast er við að svara því hvaða upplýsingar megi
> þannig fá um heimsmynd þeirra og samfélagsins. Sjónum er beint að
> lífshlaupi þeirra og samfélagslegum aðstæðum og áhrifum þessarra þátta á
> sagnaflutning þeirra og sköpun. Til grundvallar liggja hljóðritanir á afar
> stórum sagnasjóðum beggja, gerðar af þjóðfræðideild Edinborgarháskóla, BBC
> og Shetland Archives frá 1954 til 1982. Töflur yfir þær og sagnir 38
> annarra Hjaltlendinga eru í viðaukum. Þættar voru saman aðferðir
> vettvangsrannsókna í þjóðfræði, sviðslistastefnu og sagnfræði til að
> endurskapa samhengi sagnanna og öðlast dýpri skilning á merkingu þeirra
> fyrir hefðarþátttakendum. Í fyrri hluta er farið yfir helstu stefnur og
> strauma í þjóðsagnafræði, rannsóknasögu og heimildir um hjaltlenskar
> sagnir. Í seinni hluta er fjallað um lífshætti á Hjaltlandi á 19. öld og
> sagnasjóðir Henderson og Tulloch, flutningsmáti og frásagnarbrögð greind í
> töflum og texta og einstakar sagnir túlkaðar. Í ljós kom að í sagnahefð
> Hjaltlands mætast minni bæði af norrænum rótum, skoskum og írskum. Um
> tveir þriðju hljóðritaðra sagna eru trúarsagnir, þ.e. efni þeirra snýr að
> yfirnáttúrulegum vættum og öflum. Um þriðjungur fjallar um veraldleg efni,
> einkum slæma framkomu landeigenda við leiguliða, kröpp kjör og sjóslys. Þá
> kom fram að sagnamennirnir tveir voru mjög ólíkir, jafnt varðandi
> efnisval, frásagnarstíl og markmið með flutningnum. Rannsóknin rennir
> frekari stoðum undir þá kenningu að í sögnum kljáist fólk við ótta sinn og
> þrár og færi lífsviðhorf sín í frásagnarbúning. Í sögnum Henderson og
> Tulloch eru tekin til umræðu öll helstu viðfangsefni og vandamál
> samfélagsins á Yell á þeim tímum sem þær spretta af. Þær eru í senn
> spegill samfélagsins og sköpun flytjandans og bera einkenni myndar hans af
> heiminum og sjálfum sér.
>
>
> Upplýsngar eru einnig á snjáldurskinnu
> https://www.facebook.com/events/181763395257141/
>
> með kveðju og von um að sjá sem flesta
> FÞÍ
>
>
>




More information about the Gandur mailing list