[Gandur] Fwd: Félag íslenskra fræða

Eva Þórdís Ebenezersdóttir ethe3 at hi.is
Tue Apr 24 14:37:40 GMT 2012


 
 sæl verið þið í vorsælunni þjóðfræðingar

 Félag íslenskra fræða bað mig um að senda þetta áfram á ykkur og vona ég að við fjölmennum til að hlíða á Rósu fjalla um ævintýri!
 
------


Rannsóknakvöld Félags íslenskra fræða
Miðvikudaginn 25. apríl kl. 20
ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121


Rósa Þorsteinsdóttir: „Ævintýri - erlend og íslensk, prentuð og sögð“
Elstu þýðingar á erlendum ævintýrum (í nútímamerkingu þess orðs) yfir á íslensku eru frá 18. öld og Grimmsævintýri var farið að þýða hér nokkrum árum eftir að þau voru fyrst prentuð í Þýskalandi 1812. Sum þessara ævintýra voru síðan hljóðrituð af starfsfólki Árnastofnunar úr munnlegri geymd á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Ætlunin er að íhuga vegferð ævintýranna á þessu 200 ára tímabili og athuga hvernig þau aðlagast íslenskri sagnahefð og umhverfi.

Rósa Þorsteinsdóttir lauk BA-prófi í bókasafnsfræði og þjóðfræði frá HÍ og MA-prófi í þjóðfræði frá sama skóla Hún starfar sem rannsóknarlektor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Nýútkomin er bók hennar, Sagan upp á hvern mann (2011), sem fjallar um átta íslenska sagnamenn og ævintýri þeirra.

Allir velkomnir. Í hléi verður boðið upp á léttar veitingar til að fagna vorkomu.

http://islensk.fraedi.is/ 
 
 



More information about the Gandur mailing list