[Gandur] Í dag: Rétturinn til að mótmæla, málþing 1 4-17 í Bíó Paradís

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Tue May 3 08:32:48 GMT 2011


Guli borðinn: Rétturinn til að mótmæla

Þing í máli og myndum í Bíó Paradís á alþjóðadegi tjáningar- og
fjölmiðlafrelsis, í dag, þriðjudaginn 3. maí, kl. 14 til 17.

Til þingsins býður íslenska Unesco-nefndin í samstarfi við Blaðamannafélag
Íslands og Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Markmiðið með málþinginu er að efna til gagnrýninnar og uppbyggilegrar
umræðu um mótmælaréttinn. Tilefnið er sú hreyfing sem mótmælin veturinn
2008 til 2009 kom á samfélagið og dómurinn í máli níumenninganna sem féll
fyrr á þessu ári. Íslenskt samfélag stendur á krossgötum í kjölfar
dómsmálsins. Því er mikilvægt að staldra við, kryfja málið allt og horfa
um leið til framtíðar og þess samfélags sem við viljum byggja. Sömuleiðis
er ætlunin að staðsetja þessi umbrot á Íslandi í stærra samhengi
tjáningarfrelsis, mótmæla, valdstjórnar og þjóðfélagsumbrota í heiminum á
okkar dögum.

Frummælendur:
Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við HÍ,
Sólveig Jónsdóttir, leikskólaleiðbeinandi og ein af níu mótmælendum sem
ákærðir voru fyrir árás á Alþingi,
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og
Haukur Már Helgason, skáld, kvikmyndagerðarmaður og heimspekingur.

Þátttakendur í pallborði, auk frummælenda:
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands og
Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu.

Sýnd verða brot úr tveimur nýjum íslenskum heimildamyndum á vinnslustigi
sem báðar verða frumsýndar síðar á þessu ári:
- Tökum málin í okkar hendur - heimildamynd Önnu Þórsdóttur, meistaranema
í þjóðfræði við HÍ, um aktívisma á Íslandi
og
- Ge9n - heimildamynd Hauks Más Helgasonar, skálds og heimspekings, um mál
níumenninganna sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi

Þetta þing í máli og myndum er hið fyrsta i röð málþinga sem íslenska
Unesco nefndin mun standa fyrir tvisvar á ári næstu árin. Ætlunin er að
taka á þeim til umfjöllunar helstu málefnasvið Unesco. Unesco fer meðal
annars með málefni tjáningarfrelsis innan Sameinuðu þjóðanna, en rétturinn
til að mótmæla er veigamikil stoð tjáningarfrelsisins.







More information about the Gandur mailing list