[Gandur] Af hverju breytist móðir Öskubusku í kú? Í dag kl. 14 í Odda 202

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Fri Mar 18 08:23:56 GMT 2011


Why Cinderella's Mother Becomes a Cow: An Experiment in Cultural
Triangulation

Francisco Vaz da Silva, prófessor við ISCTE háskólastofnunina í Lissabonn

Í dag, föstudaginn 18. mars klukkan 14 í stofu 202 í Odda

Portúgalski þjóðfræðingurinn Francisco Vaz da Silva er gestakennari við
Háskóla Íslands í mars, en hann er sérfróður um táknheim þjóðsögunnar og
táknfræði alþýðuhefða. Eftir hann liggja m.a. bækurnar Metamorphosis: The
Dynamics of Symbolism in European Fairy Tales (2004) og Archeology of
Intangible Heritage (2008), en hann hefur einnig ritað mikinn fjölda
greina um hugfræði, heimsmyndarfræði (kosmólógíu), ævintýri og ýmsar
sögur, siði og sagnaminni: Varúlfa, kokkála, nornir, hamskipti, drekabana,
blæðingar, sjöundu börn, Rauðhettu og Öskubusku.

Í fyrirlestrinum gerir Vaz da Silva grein fyrir því hvers vegna móðir
Öskubusku breytist í kú. Fyrirlesturinn verður á ensku og er opinn öllum.

Að fyrirlestrinum standa námsbraut í þjóðfræði og safnafræði við Háskóla
Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi.







More information about the Gandur mailing list