[Gandur] Þjóðlagatónleikar með Owe Ronström

Gerður Halldóra Sigurðardóttir ghs4 at hi.is
Mon Aug 15 21:33:32 GMT 2011


Fimmtudagskvöldið 18. ágúst nk. kl. 20:00 mun Owe Ronström vera með
tónleika í Norræna húsinu.

Owe Ronström er tónlistarmaður og prófessor í þjóðfræði við háskólann á
Gotlandi í Svíþjóð. Hann hefur töluvert rannsakað og skrifað um tónlist,
dans, þjóðerni, fjölmenningu og menningararf. Einnig hefur hann staðið að
heimildarmynd um Calus, sem er dans- og tónlistarhefð í Rúmeníu. Owe hefur
að auki sett saman fleiri hundruð útvarpsþátta fyrir sænska útvarpið þar
sem hann beinir athygli hlustenda að tónlist allstaðar að úr heiminum.
Ronström er ekki bara þjóðfræðingur heldur einnig tónlistamaður og félagi
í hljómsveitunum Orientexpressen, Gunnfjauns kapell, auk þess sem hann
stýrir Balalajkaorkester Gotlands.

Owe Ronström mun halda tónleika í Norræna húsinu þann 18. ágúst kl. 20:00
og mun hann þar leika á fjölmörg hljóðfæri og gefa tónleikagestum
sýnishorn af ýmiskonar þjóðlagatónlist.

Undirleikari er Vignir Stefánsson.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Norræna húsið.

Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir.



More information about the Gandur mailing list