[Gandur] Ásatrú á Íslandi við upphaf 21. aldar: Uppruni, heimsmynd og helgiathafnir

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Mon Apr 11 22:08:29 GMT 2011


*Ásatrú á Íslandi við upphaf 21. aldar: Uppruni, heimsmynd og helgiathafnir*

Eggert Sólberg Jónsson flytur erindi á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi í
stofu 102 í Gimli fimmtudaginn 7. apríl kl. 17:00. Erindið er byggt á
nýlegri MA rannsókn Eggerts.

Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi á það hvort stofnun félags um ásatrú á
seinni hluta 20. aldar á Íslandi hafi aðeins verið eitt skref í langri sögu
endurgerðar og túlkunar á þeirri heiðnu trú sem var ríkjandi fyrir
kristnitöku. Þá veltir hann upp þeirri spurningu á hvaða hátt ásatrúarmenn í
dag notast við þau verk sem til eru um trúarbrögð fyrir kristnitöku í
trúarathöfnum sínum.

Allir velkomnir!


More information about the Gandur mailing list