[Gandur] Landsbyggðaráðstefna 2010

Óli Gneisti Sóleyjarson oligneisti at gmail.com
Mon May 3 12:23:47 GMT 2010


F R É T T A T I L K Y N N I N G

UNDIR HORNAFJARÐARMÁNA
Landsbyggðaráðstefna 2010

Helgina 21.-23. maí halda Sagnfræðingafélag Íslands og Félag
Þjóðfræðinga á Íslandi hina árlegu landbyggðaráðstefnu sína á
Suðausturlandi. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Háskólasetrið á
Hornafirði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar og ReykjavíkurAkademíuna.
Skráning á ráðstefnuna stendur nú yfir og geta áhugasamir skráð sig
hjá Írisi Ellenberger (irisel at hi.is, gsm: 8614832). Um nokkurs konar
farandráðstefnu er að ræða og gist verður í Suðursveit fyrri nóttina
og á Höfn síðari nóttina. Á dagskrá eru fjölbreytilegir fyrirlestrar,
skoðunarferðir og fleira fróðlegt.

Ráðstefnugjald er 7500 krónur og er innfalið í því rútuferð
(Rvk.-Höfn-Rvk.), kvöldverður á Þórbergssetri á föstudagskvöld,
hádegisverður á Smyrlabjörgum á laugardag, hressing í Geitafelli á
laugardag og kaffi og meðlæti í Nýheimum á Höfn á sunnudag. Gistingu
greiða ráðstefnugestir sjálfir og má sjá þá möguleika sem eru í boði
hér að neðan. Tekið er fram að stúdentar geta sótt um ferðastyrk til
Háskólasetursins á Hornafirði. Upphæð styrksins verður ekki minni en
5000 kr. og ekki hærri en 10000 kr. (fer eftir fjölda umsækjenda).
Sótt er um ferðastyrk um leið og skráning fer fram.

DAGSKRÁ

FÖSTUDAGUR  21. maí,
14:30  Lagt af stað úr Reykjavík. Rúta fer frá Árnagarði við Suðurgötu.
19:30  Kvöldverður á Þórbergssetri.
            Þorbjörg Arnórsdóttir,  forstöðumaður Þórbergsseturs,
kynnir setrið og starfsemina þar.
            Opið inn á sýningar setursins (Sýning um Þórberg Þórðarson
og Sögusýning)

LAUGARDAGUR 22. maí
8-9:00   Morgunverður.
9-10:30 Málstofa á Þórbergssetri.
Julian D´Arcy: „Áfram með smjérið.“ Vandamálið við að þýða Þórberg á ensku.
Rósa Þorsteinsdóttir. Að segja hverja sögu eins og hún var. Söfnun
Hallfreðar Arnar Eiríkssonar á sögum úr Suðursveit.
            Már Jónsson: Rúmföt í Skaftafellssýslum um miðbik 19. aldar.
10:30-11:00 Gönguferð með Fjölni Torfasyni.
11:15  Kálfafellskirkja
Margaret Cormack: Kálfafellsstaður í máldögum og þjóðsögum.
12-13:00 Hádegisverður á Smyrlabjörgum.
Júlíana Þóra Magnúsdóttir: Þjóðsagnasafnarinn frá Kálfafellsstað. Um
Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm og þjóðsagnasöfnun hennar.
14:00  Útifyrirlestur: Arnþór Gunnarsson: Mannlíf, náttúra og
ferðamennska í sögulegu ljósi.
15: 00  Kaffi Geitafell/ Hoffell
            Útifyrirlestur: Þorvarður Árnason fjallar um ljós- og
kvikmyndun sína á Hoffellsjökli.
16:00   Hólmur, Laxárdal í Nesjum: Bjarni F. Einarson,
fornleifafræðingur, kynnir uppgröftinn.
18:00   Komið í Nesjaskóla þar sem gist verður og síðan fer rútan inn
á Höfn þar sem fólk fer í  kvöldmat. Fyrir kvöldmat verður í boði að
skoða Jöklasetrið á Höfn.

SUNNUDAGUR 23. maí
8:30-9.30 Morgunverður.
9:30     Björg Erlingsdóttir, menningarstjóri á Höfn, kynnir starfsemi Nýheima.
10-12:00 Málstofa í Nýheimum.
Steinunn Kristjánsdóttir: Skreiðin á Skriðu. Um tengsl milli
Fljótsdalshéraðs og Austur-Skaftafellssýslu á miðöldum.
Soffía Auður Birgisdóttir: Svaðilfarir á jökli: Um tengsl milli
frásagnar Sigurðar á Kvískerjum og Skugga-Baldurs eftir Sjón.
            Kaffihlé.
            Eiríkur Valdimarsson: Veðurspár almennings. Eftirtekt og
sjálfsbjargarviðleitni kynslóðanna.
            Björg Erlingsdóttir: Miðlun munnlegrar hefðar í samtímanum.
12:00   Hádegisverður
13:00   Lagt af stað frá Höfn, komið til Reykjavíkur um sexleytið.


Gisting: Aðfaranótt laugardags er gist á Hala og Gerði í Suðursveit og
kostar nóttin 5000 kr. með morgunverði (gist er í tveggja og þriggja
manna herbergjum). Aðfaranótt sunnudags er gist á Hótel
Jökli/Nesjaskóla og hægt er að velja á milli eftirfarandi kosta: Eins
manns herbergi 7200 kr.; tveggja manna herbergi 9000 kr.; þriggja
manna herbergi 11300 kr.; svefnpokapláss með rúmum og vaski 2700 kr.;
svefnpokapláss á dýnum í sal 1800 kr. Morgunverður kostar 1150 kr.

Gestir eru beðnir um að taka fram hvort þeir hyggist nýta sér
gistimöguleikana og hvers konar gistingu þeir kjósi þegar þeir skrá
sig.


More information about the Gandur mailing list