[Gandur] Húmorsþing 2010 (Örfá sæti laus í rútu frá Rvk - Matargestir hvattir til að panta í síma 8979756 )

Kristinn H. M. Schram kristinn at akademia.is
Fri Mar 19 15:20:34 GMT 2010


Húmorsþing 2010

Annað Húmorsþing Þjóðfræðistofu verður haldið laugardaginn 20. mars
næstkomandi.  Húmorsþingið er bæði vetrarhátíð og málþing um húmor sem
fræðilegt viðfangsefni. Það er nú haldið í annað sinn á Ströndum.

Á málþinginu munu fræðimenn stíga á stokk og varpa ljósi á nýjustu
rannsóknir og miðlun á húmor.  Rætt verður um hin ýmsu form húmors,
svo sem brandara, uppistand, satíru og íroníu ásamt margvíslegri iðkun
þeirra í daglegu lífi. Fjallað verður um húmor sem valdatæki í baráttu
þjóðfræðihópa og ýmsar birtingarmyndir húmors í fjölmiðlum. Nemendur í
þjóðfræði eru sérstaklega velkomnir og stendur til boða að sitja
málþingið og skrifa um það námsritgerð í þjóðfræði við Háskóla
Íslands.

Um kvöldið verður boðið til skemmtunar en á boðstólnum verður meðal
annars barþraut (pub quiz) um íslenska kímni, uppistand
Uppistöðufélagins, Þorsteins Guðmundssonar og Helga Svavars
Helgasonar. Auk þess verður í annað sinn efnt til brandarakeppninnar
sívinsælu Orðið er laust.

Dagskrá Húmorsþings

12.00 – 13.30 Móttaka og fundur rannsóknarhóps á Café Riis á Hólmavík
(Hádegismatur á góðu verði. Pantanir í síma 8979756)

Málþing um húmor, hópa og vald

13.30- 16.00
Þingið sett: Kristinn Schram (Forstöðumaður Þjóðfræðistofu)

„Gagnkynhneigður, íslenskur karlmaður á daginn en útlensk lesbía á
kvöldin“, Nokkrar hugleiðingar um kyn, kyngervi, húmor og vald.  Íris
Ellenberger (Háskóli Íslands)

„Lúðar, mokið ykkar flór,“ Spaugstofan og kreppan. Nanna
Guðmundsdóttir (Háskóli Íslands)
 Kreppuhúmor.  Sagt frá ritgerð Dagbjartar Guðmundsdóttur (Háskóli Íslands)

 “I’m so clumsy!”: self-directed humour as a tool for social
interaction. Licia Masoni (University of Edinburgh)

Húmor á alnetinu. Gunnella Þorgeirsdóttir (Háskólinn í Sheffield)

Húmor á öldum ljósvakans. Þjóðfræðinemar segja frá útvarpsþáttagerð um
húmor og þjóðfræði með áheyrnarhornum  (þættirnir verða aðgengilegir
um vefsíðu Þjóðfræðistofu)

16:00 – 16:30  KAFFIHLÉ

16:30-17:00
Hrafn Jökulsson rithöfundur fjallar um doktorsritgerð afa
síns, séra Jakobs Jónssonar, um húmor í Gamla Testamentinu.

17.15
Frumsýning grínheimildamyndar Kviksögu Íslensk menning, 3. Byndý
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, mannfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði
(sjá nánar á www.icef.is)

17:30 HLÉ
Mælt er með Handverkshúsi Hafþórs og Galdrasýningunni á Ströndum (opin
17:30 – 19).
Café Riis býður upp á kvöldmat á góðu verði
(Pantanir í síma 8979756)


Skemmtidagskrá Húmorsþingsins

20.00 Barþraut (pubquiz) um íslenska fyndni
Arnar S. Jónsson stýrir

21.30 Uppistand:

Gríntvíeykið Þorsteinn Guðmundsson (Fóstbræður; Svalbarði og fl.)
og Helgi Svavar Helgason (Baggalútur, Hjálmar) flytja uppistand með
tónlistarívafi

Þórdís Nadia Óskarsdóttir og Íris Ellenberger  (Uppistöðufélaginu)

23.00 Brandarakeppnin Orðið er laust  - Gestir og gangandi keppast við
að kitla hláturtaugarnar. Sigurður Atlason stýrir en í dómnefnd sitja
valinkunnir grínarar.


Gisting á Hólmavík
Í göngufjarlægð frá vettvangi Húmorsþings:

Steinhúsið (fullbókað)
Gistiheimilið Borgabraut 4: S: 451 3136
Svefnpokaplass 2500 kr./ uppábúið  3500 morgunmatur  1000 kr.

Svefnpokapláss í Kvenfélagshúsi S. 8654463
Svefnpokapláss á 1500 kr.

Í næsta nágrenni:
Ferðaþjónustan Kirkjuból (12 km frá Hólmavík): S: 451 3474

Sjá frekari upplýsingar um dagskrá og gistimöguleika á heimasíðu
Þjóðfræðistofu: www.icef.is  og Facebook síðu:
http://www.facebook.com/home.php?ref=home#!/pages/Holmavik-Iceland/pjodfraedistofa/215990425134?ref=search&sid=680274991.1954874120..1

Einnig má hafa samband við Kristinn Schram í s. 8661940 eða Kötlu
Kjartansdóttur í s. 8654463


Rútuferð: Örfá sæti eru laus í rútuferð frá Reykjavík til Hólmavíkur
og til baka hafi samband í netfang: katla at icef.is . Lagt verður af
stað frá Reykjavík (Þjóðarbókhlöðu) á laugardagsmorgni kl. 8.30 og til
baka á sunnudagsmorgni kl. 10).

AÐ GEFNU TILEFNI VILJUM VIÐ MINNA Á AÐ LEIÐIN FRÁ REYKJAVÍK TIL
HÓLMAVÍKUR ER AÐEINS 2 ½ - 3 TÍMAR MEÐ NÝJA VEGINUM UM ARNKÖTLUDAL
(‘ÞRÖSKULDA’) SEM ER FÆR ÖLLUM FÓLKSBÍLUM (sjá www.vegagerd.is).
Galdrasýningin á Ströndum hefur útbúið kynningarmynd um leiðina sem
sjá má á Facebook síðu hennar:
http://www.facebook.com/home.php?ref=home#!/video/video.php?v=1217906289765


More information about the Gandur mailing list