[Gandur] AF STAÐ á Reykjanesið

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed May 6 11:27:31 GMT 2009


AF STAÐ á Reykjanesið
Menningar- og sögutengdar gönguferðir sumarið ´09

Síðastliðin þrjú sumur hefur verið boðið upp á gönguverkefnið AF STAÐ  
á Reykjanesið   menningar- og sögutengdar gönguferðir með leiðsögn um  
hluta af gömlu þjóðleiðunum á  Reykjanesskaganum. Ferðirnar hafa verið  
vel sóttar og áhugi fólks mikill á að kynnast náttúru og sögu  
Reykjanesskagans. Í sumar verður boðið upp á 12 ferðir. Í maí verða  
fjórar ferðir. Ferðirnar verða á laugardögum frá 9.- 30. maí og byrja  
kl. 11. Sjá nánar um ferðir á www.sjfmenningarmidlun.is

1. ferð laugardaginn 9. maí  kl. 11, Selvogsgata. Mæting við Kaldársel  
í Hafnarfirði.
Gengið verður um hluta Selvogsgötunnar, hina gömlu þjóðleið milli  
Hafnarfjarðar og Selvogs. Um er að ræða  3.- 4. klukkustunda gönguferð  
frá Kaldárseli að Bláfjallavegi neðan Grindarskarða. Gengið er í  
helluhrauni, sem er ágætt yfirferðar og í láglendi. Á þessu svæði er  
margt að skoða, s.s gjár, misgengi, Helgadalur, landnámstóftir,  
Valaból, Músarhellir, Mygludalir o.m.fl.
Ferðirnar taka yfirleitt 3 – 4 tíma með fræðslustoppum nema annað sé  
tekið fram. Gott er að vera með nesti og  í góðum skóm. Allir eru á  
eigin ábyrgð í ferðum. Hugmyndin er að göngufólk fái stimpil fyrir  
hverja ferð á þátttökuseðil. Eftir 6 -12 gönguferðir er hægt að skila  
seðli og vera með í potti sem dregið verður úr í síðustu göngu  
sumarsins. Þrír  vinningar, m.a. útivistarvörur verða í boði.
Mæting í ferð er við upphafsstað göngu. Ekið verður með þátttakendur í  
rútu til baka. Þátttökugjald er kr. 1.500 nema annað sé tekið fram.  
Frítt fyrir börn. Hver ferð verður kynnt nánar þegar nær dregur og  
eins ef um breytingar er að ræða þá má sjá það á www.sjfmenningarmidlun.is


Umsjónarmaður gönguverkefnis
Sigrún Jónsd. Franklín
sjf menningarmiðlun
sjf at internet.is/gsm. 6918828



Kveðja

sjf meningarmiðlun


-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: top_logo.jpg
Type: image/jpeg
Size: 20453 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090506/482b7c20/top_logo-0001.jpg
-------------- next part --------------







More information about the Gandur mailing list