[Gandur] Sagnakvöld í Keflavíkurkirkju

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Mar 18 08:41:03 GMT 2009


Sagnakvöld í Keflavíkurkirkju

Fimmtudaginn 19. mars kl. 20-22 verður sagnakvöld í Keflavíkurkirkju   
í umsjón sjf menningarmiðlunar og styrkt af Manngildissjóði  
Reykjanesbæjar.

Tónlistarlíf í bítlabænum Keflavík
Vignir Bergmann, kennari og tónlistarmaður hefur spilað í hljómsveitum  
í gegnum tíðina og þekkir vel sögu tónlistarlífs í bænum. Hann mun  
segja frá sinni upplifun og jafnframt spila lög sem komu út á  
hljómdiskinum Sögur af Suðurnesjum.

Saga skólahalds í Keflavík
Hildur Harðardóttir, f.v. kennari mun segja frá upphafi skólahalds í  
Keflavík á 19. öld. Allt frá því að kennslan fór fram  í einni stofu  
til skólabygginga nú-til-dags.

Bernska móður minnar
Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari og umsjónarmaður sagnakvölda  
mun segja frá tíðarandanum þegar móðir hennar var að alast upp í  
Keflavík á miðri 20. öldinni, einstökum atburðum, s.s.  
jólatrésbrunanum 1935 og ýmsu fleiru.

Tilvalið er að taka með sér vinkonur og vini, skella sér á sagnakvöld  
og njóta menningararfleiðar. Heitt verður á könnunni og allir eru  
velkomnir.

Bókin Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni fyrri sagnakvölda  
verður á sérstöku tilboðsverði. Hljómdiskurinn Sögur af Suðurnesjum og  
bækur Hildar Sagnir úr Reykjanesbæ og Sagnir úr Garði og Sandgerði  
verða jafnframt til sölu.

Nánari upplýsingar
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari
gsm 6918828/ sjf at internet.is
www.sjfmenningarmidlun.is



Kveðja

sjf meningarmiðlun


-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: top_logo.jpg
Type: image/jpeg
Size: 20453 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090318/d5458534/top_logo-0001.jpg
-------------- next part --------------






More information about the Gandur mailing list