[Gandur] Leiðir og lendingar - ratleikur Grindavíkur Ž09

Sigrún Jónsdóttir sigruj at hi.is
Fri Jun 5 06:56:28 GMT 2009


Ratleikurinn er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur, sem stendur frá
upphafi Sjóarans síkáta fram að Jónsmessu. Leitað er að  spjöldum á stöðum
sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá.
Í tilefni af því að 70 ár eru frá því að Hópið í Grindavík var grafið út
til hafnargerðar er vert að minnast á lendingar, leiðarmerki og
hafnargerð. Allt áþreifanlegir minnisvarðar þess sem var og nýst hefur
sjófarendum. Ratleikurinn vísar á nokkra slíka staði. Fróðleikurinn byggir
á bókinni Leiðir og lendingar í fiskverum Íslands I frá árinu 1890 eftir
Odd. V. Gíslason, örnefnalýsingum og munnmælum fólks í Grindavík. Höfundur
ratleiks Sigrún Jónsd. Franklín, sjf menningarmiðlun.
Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og
skila því í Saltfisksetrið ekki síðar en 19. júní. Dregið verður úr réttum
lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 20. júní. Veglegir
vinningar í boði. Ratleikskortið má finna í dagskrá Sjóarans síkáta á bls.
12 -13 sjá www.grindavik.is eða nálgast það í Saltfisksetrinu, Hafnargötu
12a Grindavík s. 4201190.

Nánari upplýsingar
Sigrún Jónsd. Franklín
www.sjfmenningarmiðlun.is
sjf at internet.is/gsm 6918828




More information about the Gandur mailing list