[Gandur] Byggð bernsku minnar

Sigrún Jónsdóttir sigruj at hi.is
Sun Dec 27 18:52:52 GMT 2009


Byggð bernsku minnar

Mánudaginn 28. des. frá kl. 18-20 í sal Björgunarsveitarinnar Þorbjörns,
Seljabót 10, Grindavík verður dagskrá tileinkuð 90 ára afmæli Tómasar
Þorvaldssonar f. 26. des. 1919 – d. 2.des. 2008. Kristinn Þórhallson og
fleiri segja sögur af Tómasi og störfum björgunarsveitarinnar. Tómas
sinnti mörgum málum í sinni heimabyggð. Gunnar sonur Tómasar mun sýna
myndir, gömul björgunartæki verða til sýnis og Kvennadeildin Þórkatla
verður með fiskisúpu til styrktar björgunarstarfinu. Allir eru velkomnir.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Þorbjörns verður kl. 20

Sigrún Jónsd. Franklín
verkefnastjóri viðburða- og menningardagskrár
www.sjfmenningarmidlun.is





More information about the Gandur mailing list