[Gandur] PubQuiz FÞÍ á Highlander á föstudaginn kl. 20:15!

Eydis Bjornsdottir eydisb at gmail.com
Wed Apr 1 20:55:55 GMT 2009


Sæl öllsömul,

Félag þjóðfræðinga á Íslandi stendur fyrir pöbbkvisi á þjóðfræðilegum nótum
næsta föstudag klukkan 20:15 á annarri hæð á Highlander. Highlander er við
Lækjargötu 10. Hér er kort til leiðbeiningar:
http://ja.is/kort/#q=index_id%3A1281724&x=357025&y=408149&z=10

Þjóðbrók, félagi þjóðfræðinema, verður boðið á staðinn líkt og síðast og
vonast er til að styrkja tengsl á milli þjóðfræðinga og þjóðfræðinema.

Að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt og það verður tilboð á barnum; bjór
á 550 kr og þrjú skot á 1300 kr.

Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090401/a859ed4a/attachment.html


More information about the Gandur mailing list