[Gandur] Náttúruleg nytjalist

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Thu Oct 23 08:46:32 GMT 2008


Fyrirlestur - Náttúruleg nytjalist

Að flétta úr víðigreinum er mjög auðvelt þar sem viðurinn er mjúkur og  
sveigjanlegur. Það er bæði hægt að nota ferskar og þurrkaðar greinar  
til verksins. Viltu fræðast frekar um hvernig hægt er að vinna með  
náttúrulegt efni eins og víðigreinar? Komdu og hlustaðu á Önnu Maríu  
Pálsdóttur sem flytur erindi um víðifléttur. Farið verður í gegnum  
hvernig á að velja góðan efnivið, geymslu og meðferð greinanna og auk  
þess kynntar ýmsar útfærslur á nytjahlutum fléttuðum úr víðigreinum.

Anna María Pálsdóttir flytur erindi fimmtudaginn 23. október kl.  
19.30-21.30 í húsakynnum okkar Nethyl 2e.
Aðgangseyrir kr. 1.500.

Anna María er garðyrkjuséfræðingur (MSc) að mennt. Hún hefur bæði í  
riti og ræðu frætt um hvernig vinna megi ýmisskonar nyjahluti úr  
víðigreinum. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra um efnið, bæði hér  
heima og í Svíþjóð.

Nánari upplýsingar hjá Láru eða Örnu í síma 551 5500.

Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Nethylur 2E
110 Reykjavík - ICELAND
+354  551-5500   fax +354  551-5532
hfi at heimilisidnadur.is
www.heimilisidnadur.is








More information about the Gandur mailing list