[Gandur] Hópshverfi

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Oct 8 08:51:19 GMT 2008


Menningar- og sögutengd ferð um Hópshverfi, sögusvið landnáms, torfbæja,
hafnargerðar  og sjávarútvegs  í Grindavík.

Menningar- og sögutengd ferð í boði Grindavíkurbæjar og  
Saltfiskssetursins
verður laugardaginn 11. október kl. 11:00.
Ferðin hefst við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið verður að tóftum
gamla Hópsbæjar og Neðri-sundvörðu. Þar verður vígt fimmta söguskiltið  
sem
sett er upp í Grindavík og nú í Hópshverfi. Þar má má sjá ýmsar minjar,
s.s. tóftir gamla torfbæjarins á Hópi og jafnvel minjar um landnámsskála
Molda-Gnúps, landnámsmanns Grindavíkur.
Gengið verður með strandlengjunni að Eyjagarði, hafnarbakkanum sem  
reistur
var í Vestmannaeyjagosinu, og að minjum á Hópsnesi. Boðið verður upp á
stutta siglingu til baka um Hópið með björgunarsveitabátnum, Oddi V.
Gíslasyni, ef veður leyfir. Í ferðinni verður ýmislegt skoðað sem  fyrir
augu ber á leiðinni. Ómar Smári Ármannsson, Óskar Sævarsson og Sigrún
Jónsd. Franklín sjá um fræðsluna. Áætlað er að ferðin taki um tvo tíma.
Í lok ferðar er tilvalið að koma við í Saltfisksetrinu og skoða sýningar
sem þar eru og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.
Ferðin er liður í viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og
Grindavíkurbæjar 2008.

Ath.  Ferðin hefst kl. 11:00, en ekki kl. 13:00 eins og stendur í
viðburða- og menningardagskrá 2008.

Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu Jónsd. Franklín, verkefnastjóra gsm  
6918828
www.sjfmenningarmidlun.is eða www.grindavik.is







More information about the Gandur mailing list