[Gandur] Páskaganga

Adalheidur Gudmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Mar 19 11:18:16 GMT 2008


Spennandi páskadagskrá.



Á annan í páskum verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn í boði Bláa  
Lónsins og Grindavíkurbæjar. Gangan hefst kl. 13.00 við bílastæði Bláa  
lónsins og er áætlað að hún taki um 2-3 klukkustundir. Enginn  
þátttökukostnaður er í gönguna.



Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem  
hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið,  
haldið austur með suðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar  
er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga.  
Þá verður gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og um hið  
litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind.

Reynt verður að hafa ferðina og fræðsluna þannig að börn jafnt sem  
fullorðnir hafi gagn og gaman af. Góður skófatnaður æskilegur og gott  
að taka með sér smá nesti. Allir á eigin ábyrgð. Í lok göngu verður  
tilboð, 2 fyrir 1 ofan í lónið, vatnsleikfimi kl. 16.30 og spennandi  
páskamatseðill á Lava veitingastaðnum. Sjá nánar á www.bluelagoon.is



Jafnframt er tilvalið að koma við í Listsýningarsal Saltfisksetursins  
í Grindavík og skoða áhugaverða sýningu Fríðu Rögnvaldsdóttur, Forkar  
og fagrar meyjar. Opnunartími frá kl. 11 – 18. Sjá nánar á www.saltfisksetur.is

  kveðja

Sigrún Jónsd. Franklín
sjf menningarmiðlun
sjf at internet.is

-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/mixed


More information about the Gandur mailing list