[Gandur] Reykjavíkursögur - Hugljómun á Safnanótt í Listasafni Íslands

Unnur María. Bergsveinsdóttir unnurm at bok.hi.is
Wed Feb 6 16:51:35 GMT 2008


Hugljómun á Safnanótt

Reykjavíkursögur - Frístundir í borginni.

 

Hvernig verja Reykvíkingar frítíma sínum? Komdu og segðu okkur frá eftirminnilegum stundum í borginni! Skautaðir þú á Tjörninni eða í Skautahöllinni? Heimsóttir þú Listamannaskálann eða gekkstu á sunnudögum um Hallargarðinn? Manstu spilasalinn í Hafnarstræti eða tónleikamaraþon Tónabæjar? Dansaðir þú á Borginni eða í Hollywood eða gekkstu kannski Hallærisplanið? Heimsækir þú listasöfnin og Kolaportið? Býrðu þig í betri fötin á sunnudögum? 

 

Á Vetrarhátíð býður Miðstöð munnlegrar sögu borgarbörnum, ungum jafnt sem öldnum, að tylla sér inn í hljóðver miðstöðvarinnar og segja frá æsku og uppvexti í Reykjavík. Hljóðver Miðstöðvarinnar verður að finna í litlu vinalegu garðhúsi í Listasafni Íslands. Allir þeir sem heimsækja hljóðverið fá afrit af eigin upptöku á geisladiski. Hljóðverið er opið á Safnanótt frá klukkan 19-01 og einnig laugardaginn 9. febrúar frá klukkan 12-15.  

 

Söfnunarátakið Borgarbörn er hluti af stærra verkefni sem nefnist Reykjavíkursögur. Markmiðið er að safna, varðveita og miðla Reykjavíkursögum frá ólíkum tímum. Á árinu 2007 var lögð áherslu á barnið sem borgarbúa, árið 2008 verður athyglinni beint að frístundum sem mótast af borgarumhverfinu og árið 2009 er stefnt að því að safna heimildum um líf og tilveru aldraðra í borginni. Frásagnirnar verða tekin upp og geymdar í safni Miðstöðvar munnlegrar sögu. Þær verða nýttar til að byggja upp sérstakan vef Reykjavíkursagna þar sem verður hægt að hlusta og fræðast í máli og myndum um lífið í Reykjavík á ýmsum tímum. 

 

Miðstöð munnlegrar sögu sem tók til starfa í ársbyrjun 2007 er safn og rannsókna- og fræðslustofnun á sviði munnlegrar sögu með aðsetur í Þjóðarbókhlöðu. Hlutverk hennar er að safna munnlegum heimildum um sögu landsmanna, miðla þeim og varðveita til frambúðar. Vefsíðu Miðstöðvarinnar er að finna á http://www.munnlegsaga.is 

 

Styrktaraðilar Reykjavíkursagna eru Reykjavíkurborg, IKEA og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Nánari upplýsingar gefur Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu, í síma 525-5776 og 691-0374 og gegnum netfangið munnlegsaga at munnlegsaga.is.

 

----

Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnisstjóri

Miðstöð munnlegrar sögu

Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík

 

sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm at bok.hi.is <mailto:unnurm at bok.hi.is> 
vefsíða: www.munnlegsaga.is <http://www.munnlegsaga.is> 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080206/274430ad/attachment.html


More information about the Gandur mailing list