[Gandur] Um kvenbúninga heimsins - Karl Aspelund heldur fyrirlestur 7. janúar kl. 20

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Fri Dec 19 12:05:39 GMT 2008


> Karl Aspelund heldur fyrirlestur miðvikudaginn 7. janúar kl. 20-22 í  
> húsakynnum okkar að Nethyl 2e.
>
> Fyrirlesturinn ber yfirskriftina  „Um kvenbúninga heimsins á  
> upphafsárum nýrrar aldar" en einnig verður boðið upp á umræður. Karl  
> undirbýr nú doktorsritgerð sína um þjóðbúninga og hefur áhuga á að  
> ná tali af fólki sem ber þjóðbúninga.
>
> Karl Aspelund kennir fatahönnun í Bandaríkjunum, við University of  
> Rhode Island og stundar doktorsnám við Boston University. Áhugasvið  
> hans er samspil fatahönnunar og sjálfsmyndar þjóða og um þessar  
> mundir er hann að hefja rannsókn á stöðu og merkingu þjóðbúninga  
> kvenna á Íslandi í dag. Hann hefur kennt og unnið sem hönnuður í  
> Bandaríkjunum frá 1996, en kenndi áður fatahönnun og fleira við  
> Iðnskóla Reykjavíkur og hannaði leikmyndir og búninga fyrir  
> kvikmyndir og leikhús. Karl er höfundur „The Design Process,” sem er  
> notuð til kennslu í á fimmta tug háskóla í Bandaríkjunum. Næsta bók  
> hans, „Fashioning Society”, kemur út í vor. Karl flytur erindi fyrir  
> Þjóðbúningaráð Íslands á þingi norrænu þjóðbúningaráðanna sem haldið  
> verður í Orbaden, Svíþjóð,  2009.
>
> Karl er með eftirfarandi vefsíðu í undirbúningi í tenglum við  
> doktorsverkefnið:
> http://people.bu.edu/aspelund/
>
> Aðgangseyrir er kr. 1500. Að beiðni Karls renna 1000 kr. af þeirri  
> upphæð í Minningarsjóð Indriða Guðmundssonar, klæðskera.
>
> Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig með því að senda  
> póst á hfi at heimilisidnadur.is eða hringja í síma 551 5500.
>
> Með kveðju,
> Arna María Gunnarsdóttir.
>
> Heimilisiðnaðarfélag Íslands
> Nethylur 2E
> 110 Reykjavík - ICELAND
> +354  551-5500   fax +354  551-5532
> hfi at heimilisidnadur.is
> www.heimilisidnadur.is
>

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum / The Árni Magnússon  
Institute for Icelandic Studies
Árnagarði við Suðurgötu
IS-101 Reykjavík
Sími/Tel.: +354 8680306/+354 5520510
http:www.hi.is~adalh






-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20081219/02f4dac6/attachment.html


More information about the Gandur mailing list