[Gandur] AF STAÐ 4

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Aug 20 15:04:42 GMT 2008


Selvogsgata-gömul þjóðleið
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 24. ágúst kl. 11.
Gangan hefst við slysavarnaskýli á Bláfjallaleið, neðan Grindarskarða.

(Til að komast á upphafsstað göngu er ekið frá Hafnarfirði,  
Krýsuvíkurleið
þangað til að komið er að stóru skilti sem á stendur Bláfjöll þar er  
beygt
til vinstri og ekið í um 10 mín. að slysavarnaskýli).

Gengið verður frá Grindarskörðum að Hlíðarvatni í Selvogi.  
Selvogsgatan er
gömul þjóðleið milli Hafnarfjarðar og Selvogs. Þessi hluti leiðarinnar  
er
um 18 km og tekur um 6-7 tíma. Svæðið býr yfir minjum, mögnuðum sögum og
fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Gott er að  
vera
með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Ekið með rútu til
baka frá Hlíðarvatni. Þátttöku- og rútugjald er kr. 2500.

Gangan er fjórði hluti af sex menningar- og sögutengdum gönguferðum um
hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar eru á
tímabilinu 1.ágúst – 7. sept. ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem
göngufólk safnar stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi. Þegar búið
verður að fara 3 - 6 ferðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír
heppnir fá góð gönguverðlaun. Dregið verður í sjöttu ferð. Göngufólk er
beðið um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Sjá nánar um
ferðir á www.sjfmenningarmidlun.is


Umsjónarmaður gönguverkefnis
AF STAÐ á Reykjanesið
Sigrún Jónsd. Franklín
sjf at internet.is/6918828










More information about the Gandur mailing list