[Gandur] From the Little Ice Age to Global Warming. Fyrirlestur Christian Keller á vegum Félags íslenskra fornleifafræðinga 24. nóv. kl. 15 í Þjóðminjasafninu

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Nov 21 20:12:34 GMT 2007


From the Little Ice Age to Global Warming.  
Is Archaeology Relevant?

Félag íslenskra fornleifafræðinga kynnir opinn fyrirlestur í 
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 24. nóvember 
næstkomandi klukkan 15. 

Christian Keller, prófessor við Háskólann í Ósló, nefnir fyrirlestur sinn: 
„From the Little Ice Age to Global Warming. Is Archaeology Relevant?“ 
Bakgrunnur Christians innan fornleifafræðinnar eru neðansjávarrannsóknir. 
Hann hefur starfað víða um heim, auk Noregs í Sviss, Tyrklandi, Kýpur og á 
Tælandi. Á síðustu áratugum hefur áhugi hans einkum beinst að 
Norður-Atlantshafi á víkingatíma og á miðöldum. Rannsóknarvettvangur 
Christians er Noregur, Ísland, Grænland og Nýfundnaland og áhugasviðið 
hefur einkum verið landnám norrænna manna og menningarlandslag með 
sérstakri áherslu á landbúnaðarminjar. Christian situr í stjórn NABO. 
Christian hefur starfað um árabil á Íslandi, meðal annars í 
Suður-Þingeyjarsýslu. Á síðari árum hefur hann tekið þátt í að skipuleggja 
vettvangsskóla fyrir fornleifafræðinemendur, bæði á Hólum í samvinnu við 
Hólarannsóknina og í Vatnsfirði í samvinnu við Fornleifastofnun Íslands.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071121/7be54ee9/attachment.html


More information about the Gandur mailing list