[Gandur] Áhugaverður fyrirlestur Ragnheiðar Traustadóttur um fornleifarannsóknina á Hólum í Hjaltadal 22. nóv. kl. 17

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Nov 20 18:06:10 GMT 2007


Hólar í Hjaltadal
„Innan stokks og utan á biskupsstólnum á Hólum“
 
Fyrirlestur
um fornleifauppgröft og rannsóknir að Hólum í Hjaltadal á vegum Minja og 
sögu í Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn 22. nóvember n.k. kl. 17.00. 
Fyrirlesari verður Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur.
 
Ragnheiður fjallar um fornleifauppgröft og rannsóknir á Hólum í Hjaltadal 
og sýnir myndir frá uppgreftrinum.
Að rannsókninni koma innlendir og erlendir sérfræðingar úr flestum greinum 
menningarsögulegra rannsókna. Markmið Hólarannsóknarinnar er m.a. að fá 
heildarmynd af þróun staðarins og umhverfis hans og enn fremur að afla 
nýrra gagna um sögu Íslands og samskipti Íslendinga til forna við 
umheiminn.
Hólar í Hjaltadal voru höfuðstaður Norðurlands um aldir, biskupsstóll og 
fræðasetur. Staðurinn geymir í jörðu miklar upplýsingar um sögu kirkju og 
þjóðar.
Ragnheiður Traustadóttir er stjórnandi Hólarannsóknarinnar.
Ragnheiður starfaði við Þjóðminjasafn Íslands frá árinu 1994 til 2006, 
Árbæjarsafn og Byggðasafn Skagfirðinga. Hún lauk fil.kand. prófi frá 
Stokkhólmsháskóla og er í meistaranámi við Uppsala Háskóla.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og að taka með sér gesti.
  
Reykjavík, 16. nóvember 2007 
Með kveðju,
stjórnin

www.holar.is/holarannsoknin




Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071120/e3aa4a54/attachment.html


More information about the Gandur mailing list