[Gandur] Kynning á lokaverkefnum í þjóðfræði

Bryndís Reynisdóttir bryndisr at hi.is
Thu Nov 8 19:53:06 GMT 2007


Næstkomandi fimmtudag þann 15. nóvember mun Félag þjóðfræðinga standa
fyrir kynningu á lokaverkefnum í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

David P. Nickel, BA í þjóðfræði, kynnir lokaritgerð sína  „The Comic Book
as Folklore: An Analysis through Example“. Erindi hans verður flutt á
ensku. Í því verður farið í saumana á því hvernig teiknimyndasögur hagnýta
sér þjóðfræðiefni.

Jón Kristján Johnson, BA í þjóðfræði, kynnir lokaritgerð sína „Allar sögur
eru réttar um mig, ef þær eru góðar“. Erindið fjallar um sagnir af Ólafi
Ketilssyni rútubílstjóra.

Fyrirlestrarnir verða haldnir í stofu 206 í Odda við Suðurgötu klukkan 17:15.

Með kveðju fyrir hönd félagsins
Bryndís Reynisdóttir
tel.: (354) 866-5952




More information about the Gandur mailing list