[Gandur] HÁLENDI HUGANS

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue May 22 14:09:16 GMT 2007


Kæru þjóðfræðingar og þjóðfræðinemar,

meðfylgjandi eru upplýsingar um skráningu á ráðstefnuna „Hálendi  
hugans“. Ég hvet ykkur öll til að fjölmenna á Leirubakka og eiga  
saman góða helgi. Við getum lofað skemmtilegri dagskrá, eins og sjá  
má hér að neðan:

HÁLENDI HUGANS: SKRÁNING HAFIN!

9. landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags  
þjóðfræðinga á Íslandi verður haldin á hinu nýja Heklusetri á  
Leirubakka í Landsveit í samvinnu við heimamenn helgina 1.-3. júní 2007.

Ráðstefnugestir munu gista og funda á hinu fornfræga höfðingjasetri  
að Leirubakka sem var eitt sinn í eigu ekki ófrægari manna en  
rithöfundar Íslands Snorra Sturlusonar og síðar Björns Þorleifssonar  
hirðstjóra. Eftir stranga fræðimennsku er ekki verra að svamla í  
glæsilegri Snorralaug í kvöldsólinni með ægifögru útsýni á Heklu og  
ræða niðurstöður dagsins við aðra ráðstefnugesti. Þá verður boðið upp  
á fræðslu- og skemmtiferð um Hekluslóðir. Hér gefst því einstakt  
tækifæri til að fræðast og treysta vinabönd í góðra vina hópi í faðmi  
náttúrunnar.

Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Hálendi hugans“ og verður  
umfjöllunarefnið, eins og titillinn gefur til kynna, hálendi Íslands,  
sagan, þjóðsögur, nýting og samspil náttúruaflanna og mannsins á  
þessu svæði.

Ráðstefnugestum býðst gisting á Leirubakka, sem og að kaupa sér  
kvöldverð föstudaginn 1. júní og hátíðarkvöldverð laugardaginn 2.  
júní. Verð fyrir gistingu er eftirfarandi:

Gisting með morgunverði í TVÆR nætur:
Verð á mann í tveggja manna herbergi með baði, samtals         12.600
Verð á mann í eins manns herbergi með baði, samtals               19.800
Verð á mann í 2ja-4ra manna herbergi án baðs, samtals		   8.900

Þeir sem áhuga hafa eru beðnir um að skrá sig við fyrsta tækifæri,  
ekki síst til að tryggja sér gistirými, sem er takmarkað. Valgerður  
Brynjólfsdóttir, staðarhaldari á Leirubakka, mun verða okkur innan  
handar með að útvega gistipláss í nágrenni Leirubakka ef gistiaðstöðu  
á ráðstefnustað þrýtur.

Ráðstefnuhaldarar munu greiða rútuferðir til og frá Leirubakka,  
hádegismat, kaffi og skoðunarferð. Athugið, að ráðstefnugjald er ekkert!

Valgerður á Leirubakka heldur utan um skráningu. Vinsamlegast látið  
hana vita sem fyrst um:

- fyrirkomulag gistingar
- hvort þið gerið ráð fyrir að vera í kvöldverð föstudaginn 1. júní  
og/eða hátíðarkvöldverð laugardaginn 2. júní
- hvort þið munið nýta ykkur rútuferð til og frá ráðstefnustað
- hvort þið gerið ráð fyrir að koma með í rútuferðina á laugardeginum

Tekið er við skráningum á netfangið vala at leirubakki.is eða í síma 487  
8700 eða 893 5046 (ef netsamband er slæmt gæti reynst nauðsynlegt að  
senda bréfið aftur, þ.e. ef Valgerður svarar ekki). Vinsamlegast  
sendið fulltrúa annars félagsins afrit af bréfinu: adalh at hi.is (Félag  
þjóðfræðinga) eða gudnith at hi.is (Sagnfræðingafélagið).

Dagskráin verður eftirfarandi:

Föstudagurinn 1. júní
15:00 Brottför með rútu frá Nýja Garði
17:30-18:00 Skrásetning og fólk kemur sér fyrir
18:00-19.30 Léttur kvöldverður
20:00-20:30 Setningarfyrirlestur: Guðmundur Jónsson sagnfræðingur:  
Ástríður Guðna Jónssonar. Hugleiðing um manninn og verk hans.
20:30-23:00 Móttaka vegna afhjúpunar minnisvarða um Guðna Jónsson

Laugardagurinn 2. júní
08:00-09:00 Morgunverður
09:00-10:30 Handan hins þekkta:
Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur: Óttinn við hið óþekkta.
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir íslenskufræðingur: Landmannaafréttur -  
útmörk hins mannlega samfélags. Sagnir af Jóni Brandssyni, fjallkóngi  
og bónda í Næfurholti.
Margaret Cormack miðaldafræðingur: Á sveimi yfir Heklu: hugmyndir  
miðaldamanna um fugla og sálir.

10:30-11:00 Kaffi
11:00-12:30 Landamæri og landamörk:
Helga Ögmundardóttir mannfræðingur: Afrétturinn sem hluti af hinu  
sameiginlega sjálfi. Gnúpverjar og vinin sunnan Hofsjökuls.
Einar G. Pétursson handritafræðingur: Eignir kirkna á fjalllendi og  
málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum.
Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur: Hverjir nýttu fyrrum byggðir og  
auðnir Íslands frá fjöru til fjalls – og hvernig?

12:30-14:00 Hádegisverður og hlé
14:00-15:30 Í huga sérhvers manns:
Marion Lerner menningarfræðingur: Ferðasögur sem minnismerki handa  
þjóðinni.
Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur: Hálendið í hugum útlendra ferðamanna
Anna Dóra Sæþórsdóttir ferðamálafræðingur: Nýting hálendisins til  
ferðamennsku.

15:30-18:00 Fræðsluferð um Hekluslóðir (með kaffi)
Leiðsögumaður: Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, með aðstoð Þórs  
Jakobssonar veðurfræðings.

20:00-22:00 Hátíðarkvöldverður
Björk Þorleifsdóttir sagnfræðingur: „Troddu þér nú inn í tjaldið hjá  
mér“. Skemmtanalíf á hálendinu.
Bjarni Harðarson blaðamaður: Hátíðarræða.

Sunnudagur 3. júní
10:00-11:30 Könnun hálendisins:
Ingibjörg Jónsdóttir landfræðingur: Óbyggðaleiðangrar Þorvalds  
Thoroddsen.
Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur: Ísland er ekki líkt tunglinu –  
hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi.
Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur: Landnám iðnvæðingar - öræfi og  
virkjanir. Um viðhorf til hálendisins í umræðu um virkjanir á 20. öld.

11:30-13:30 Hádegisverður og hlé
13:30-17:00 Opin málstofa um hálendið:
13:30-15:00
Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur: Hálendi hugans.
Þorsteinn Hilmarsson heimspekingur: Er firring í firnindum?

15:00-15:30 Kaffi
15:30-17:00
Þorvarður Árnason umhverfisfræðingur: Fagurfræði hálendisins.
Júlíus Sólnes verkfræðingur: Hálendið-sjálfstjórnarsvæði í eigu  
almennings.

18:00-20:30 Rútuferð til Reykjavíkur

Undirbúningsnefndina skipa:
Guðni Th. Jóhannesson, Björk Þorleifsdóttir og Íris Ellenberger fyrir  
hönd Sagnfræðingafélagsins, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Rósa  
Þorsteinsdóttir fyrir Félag þjóðfræðinga, auk ábúenda á Leirubakka.

Styrktaraðilar: Menntamálaráðuneyti, Umhverfisráðuneyti,  
Fjármálaráðuneyti, N1, Rangárþing ytra, Stangaveiðifélag Reykjavíkur,  
Bændasamtök Íslands og Heklusetrið, Leirubakka.


Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh








More information about the Gandur mailing list