[Gandur] Lýðræði hvað? Hádegisfundarröð ReykjavíkurAkademíunnar um lýðræði og samfélag

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Fri Mar 16 12:48:20 GMT 2007


Lýðræði hvað?

Hádegisfundarröð ReykjavíkurAkademíunnar um lýðræði og samfélag


Mánudaginn 19. mars mun Arnþrúður Ingólfsdóttir heimspekingur halda
erindi sem hún nefnir „Í krafti margbreytileikans“, byggt á BA
verkefni sínu í heimspeki.  Í erindi sínu leggur Arnþrúður út frá
kenningum Iris Marion Young um lýðræði sem snýst um að nýta
félagslegan margbreytileika samfélagsins til að auðga og styrkja
lýðræðislega samræðu og ákvarðanatöku, svo lýðræði geti náð til
allra. En hluti af því er að gera fulltrúum minnihlutahópa kleift að
hafa meiri áhrif á lýðræðislegar ákvarðanatökur.

Að erindi hennar loknu munu Anh-Dao Tran verkefnastjóri Framtíðar í
nýju landi, Sigursteinn R. Másson formaður Öryrkjabandalags Íslands,
Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona Feministafélagsins og  Margrét
Margeirsdóttir, formaður félags eldri borgara  í Reykjavík taka þátt
í umræðu og svara spurningum úr sal.

Fundirnir hefjast stundvíslega kl: 12.15 og eru þeir haldnir í
húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar Hringbraut 121 (JL-húsið), 4. hæð.

Að sjálfsögðu er öllum velkomið að mæta með hádegisbitann sinn, taka
þátt í hressandi umræðu og hita sig upp fyrir kosningar!= 



More information about the Gandur mailing list