[Gandur] Sagnaslóðir á Reykjanesi I

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Mon Jun 11 09:16:16 GMT 2007


Sagnaslóðir á Reykjanesi I
Útgáfukvöld í Saltfisksetrinu í Grindavík

Fimmtudaginn 14. júní kl. 21:00 verður útgáfukvöld í Saltfisksetrinu  
í Grindavík. Tilefnið er útkoma ritsins  Sagnaslóðir á Reykjanesi I.   
Kynning verður á ritinu, myndasýning og fjöldasöngur.

Ritið Sagnaslóðir á Reykjanesi I  byggist á efni sem leiðsögumenn  
Reykjaness fluttu  á sagnakvöldum víðs vegar á Suðurnesjum á  
tímabilinu desember ´05 – apríl ´07.
Sigrún Jónsd. Franklín tók efnið saman og ritstýrði.

Reykjanesskaginn, sem nær frá Garðskagaflös upp í Hvalfjarðarbotn og  
frá Reykjanestá austur undir Þorlákshöfn, hefur að mörgu leyti verið  
mjög vanmetinn, bæði sögulega séð og sem ferðamannaslóðir. Er þá  
einkum átt við þann hluta hans, sem kallaður hefur verið Suðurnes.  
Þegar vel er gáð leynist þar mikil saga og merkileg og svæðið bíður  
upp á landfræðileg undur og feikna fegurð víðsvegar.

Ritinu er ætlað að opna augu fólks og vekja áhuga á þessum  
forvitnilegu slóðum. Eftir að hafa kynnt sér efni þess í ró og næði  
heima fyrir, er einkar hentugt að taka það með sér í bílinn, aka á  
einhvern þeirra staða, sem fjallað er um, og njóta síðan leiðsagnar  
þess um sögu, minjar og landslag í þægilegum og hressandi göngutúr.

Ritið er 141 bls. og prýtt fjölda mynda. Ritið verður til sölu á  
helstu upplýsingamiðstöðum ferðamála á Reykjanesi.

Ritstjóri færir öllum sem lagt hafa hönd á plóginn og veitt aðstoð  
við útgáfu þessa rits þakkir fyrir framlag sitt. Sambandi  
sveitarfélaga á Suðurnesjum og  Sparisjóði Keflavíkur sem styrktu  
ritið með fjárframlögum eru færðar  kærar þakkir.

Á útgáfukvöldinu verður heitt á könnunni og allir velkomnir meðan  
húsrúm leyfir

Sigrún Jónsd. Franklín
leiðsögumaður Reykjaness og ritstjóri
sigruj at hi.is









More information about the Gandur mailing list