[Gandur] AF STAÐ á Reykjanesið 5. ferð

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Aug 28 08:42:59 GMT 2007


Hér er auglýsing frá Sigrúnu Jónsdóttur Franklín:

AF STAÐ á Reykjanesið - Hvalsnesleið 6,5 km

Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 2. september kl. 11 í  
boði Reykjanesbæjar og Ferðamálasamtaka Suðurnesja í samvinnu við sjf  
menningarmiðlun og FERLIR.
Gengið frá Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ, Menntavegi 1 að  
Melabergi, Hvalsnesi. Gömul fallega vörðuð þjóðleið sem býr yfir  
mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumenn Reykjaness munu miðla á  
leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi  
fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með  
stoppum. Rútuferð til baka kr. 500. Frítt fyrir börn. Gott er að hafa  
með sér nesti og góða skó. Allir á eigin ábyrgð.

Gangan er fimmti hluti af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum  
um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á  
tímabilinu frá 5.ágúst – 2. sept. ´07. Boðið er upp á  þátttökuseðil  
þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið  
verður að fara 3 - 5 þjóðleiðir verður dregið úr seðlum og einhver  
heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna.  
Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í  
ferðir.

Sigrún Jónsd. Franklín
sjf menningarmiðlun
sjf at internet.is/6918828

>
>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: AF  STA? ? Reykjanesi? 5.fer? ?n myndar.doc
Type: application/msword
Size: 20992 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070828/ac669af6/AFSTAReykjanesi5.fernmyndar-0001.doc
-------------- next part --------------

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum / The Árni Magnússon  
Institute for Icelandic Studies
Árnagarði við Suðurgötu
IS-101 Reykjavík
Sími/Tel.: +354 8680306/+354 5520510
http:www.hi.is~adalh








More information about the Gandur mailing list