[Gandur] [Fwd: Matur-saga-menning]

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Sun Nov 26 15:25:09 GMT 2006



Að éta skóna sína..

Íslenskur matur á borðum erlendra ferðamanna fyrr og síð





Félagið Matur- saga-menning gengst fyrir öðrum fræðslufundi vetrarins 
fimmtudaginn 30. nóvember kl 20 að Grandagarði 8 í Reykjavík. Í þetta 
sinn verður umfjöllunarefnið Matur og ferðamennska. Íslenskur matur á 
borðum ferðamannsins fyrr og síð.



Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur við Reykjavíkur akademíuna, ríður á 
vaðið þetta kvöld og fjallar um lýsingar á íslenskum mat og drykk í 
erlendum heimildum frá fyrri öldum, undir yfirskriftinni /Að éta skóna 
sína: Íslensk matarmenning í erlendum ritum um Ísland. / Þar sýnir 
Sumarliði ýmis dæmi um erlenda texta þar sem greint er frá matarmenningu 
og drykkjusiðum Íslendinga á fyrri öldum og upplifun og lýsingum
útlendinga á þeirri reynslu að vera í fæði á Íslandi.



Laufey Haraldsdóttir frá Ferðamáladeild Hólaskóla lítur okkur nær í tíma 
í seinna erindi kvöldsins, sem hún nefnir /Hafa ferðamenn áhuga á mat? 
Staðbundinn matur, auðlind í/ /ferðaþjónustu./  Þar kynnir hún
niðurstöður kannana á viðhorfum erlendra ferðamanna til matarins og  áhuga
þeirra á íslenskri matarhefð. Eins segir hún frá verkefninu  /Matarkistan
Skagafjörður/, sem er dæmi um hvernig nýta má auðlegð og  menningu
einstakra héraða í svæðisbundinni ferðamennsku. Að loknum  erindum verður
tími fyrir umræður, fyrirspurnir og spjall í bland við  veitingar við
hæfi.



Fundurinn /Að éta skóna sína/ verður haldinn að Grandagarði 8,
fimmtudaginn 30. nóvember kl 20- 21:30 og er öllum opinn meðan húsrúm 
leyfir.







More information about the Gandur mailing list