[Gandur] Gary West: skoskur sekkjapípuleikur

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Mon Jan 9 08:48:30 GMT 2006


Félag þjóðfræðinga á Íslandi stendur fyrir tónleikum með skoska  
sekkjapípuleikaranum og þjóðfræðingnum Gary West í Norræna húsinu,  
fimmtudaginn 12. janúar kl. 20.00.

Gary West er talinn einn besti sekkjapípuleikari Skotlands og hefur  
komið fram á virtustu tónlistarhátíðum Evrópu og Norður-Ameríku. Auk  
þess að leika á sekkjapípur sínar mun hann kynna þessi sérstæðu  
hljóðfæri og tónlistina sem hann leikur.

Miðar verða seldir við innganginn og kosta 1.500.-

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh





-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060109/6ee60b3d/attachment.html


More information about the Gandur mailing list