[Gandur] Skráning: í dag og á morgun

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Feb 28 09:38:52 GMT 2006


Kæru þjóðfræðingar,

ég minni á að skráning á landsbyggðarráðstefnuna stendur til 1. mars  
- enn eru c. 10-15 sæti laus í rútunni, svo ég hvet ykkur til að skrá  
ykkur sem fyrst. Vinsamlegast áframsendið auglýsinguna til þeirra  
sem  kynnu að hafa áhuga á að koma.

„Gaman er að koma í Keflavík“. Landsbyggðarráðstefna
Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Sagnfræðingafélags Íslands og heimamanna,
Duus-húsum í Reykjanesbæ, laugardaginn 4. mars 2006.

08:00	Rúta frá Nýja Garði
09:00-10:30	Kynnis- og fræðsluferð um Keflavíkurflugvöll
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, rekur þær breytingar  
sem
orðið hafa á umsvifum þess undanfarin ár

10:30-10:45	Setning ráðstefnunnar, Duus-húsum
10:45-12:15	 „Kaninn“ og þjóðin.
1.	Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur: Dægurtónlist, erlend áhrif,
bandaríski herinn og „Völlurinn“
2.	Gestur Guðmundsson félagsfræðingur: Kanaskríll í  Keflavík:
Ameríkanisering, þjóðmenning og sjávarselta í íslensku rokki
3.	Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja: „Enda komu  
þeir
færandi hendi.“ Áhrif bandaríska varnarliðsins á mannlíf á Suðurnesjum,
neyslu, dægurmenningu, málfar og samskipti kynjanna

12:30-13:30	Hádegisverður í Duus-húsum

13:30-15:00	Sagnir og söfn á Suðurnesjum.
4.	Sigrún Jónsdóttir Franklín þjóðfræðingur og leiðsögumaður:  
Sagnamenning
á Suðurnesjum
5.	Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri: Samtíminn í byggðasöfnum
6.	Helgi Hólm: Sögulegar heimildir af heimaslóðum. Blaðaútgáfa Faxa í  
65 ár

15:00-15:30	Kaffihlé

15:30-17:00	Innreið og útrás íslenskra dægurlaga.
7.	Karl Jóhann Garðarsson sagnfræðingur: „Óþjóðhollir starfshættir“. Líf
og dauði menningar og frelsis með „innreið“ erlendra dægurlaga.
8.	Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur: „Þau minna á fjallavötnin
fagurblá“: Um dægurlagatexta og samfélag á Suðurnesjum
9.	Þór Tjörvi Þórsson sagnfræðingur: Vegir liggja til allra átta.  
Hljómar
og upphaf útrásar íslenskra tónlistarmanna

17:00-18:00	Móttaka í boði Reykjanesbæjar, þar sem keflvískir  
tónlistarmenn taka vonandi lagið.
18:00-21:00	„Kvöldin þar þau eru engu lík“. Kvöldverður í Duus-húsi

c. 21:00-21:45	Rútuferð í bæinn


Skráning á ráðstefnuna er hafin og stendur til miðvikudagsins 1. mars.
Þátttaka í ráðstefnunni er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Fargjald í rútu fram og til baka, auk kynnisferðar um  
Keflavíkurflugvöll,
er þúsund krónur og greiðist í rútu að morgni ráðstefnudags. Áhugasamir
skrái sig hjá Aðalheiði Guðmundsdóttur, adalh at hi.is (868-0306) eða Guðna
Th. Jóhannessyni, gudnith at hi.is  (895-2340), og taki fram hvort þeir  
skrá sig
aðeins á ráðstefnuna eða rútuferðir sömuleiðis.
	Ókeypis kaffiveitingar verða í boði á meðan ráðstefnunni stendur.  
Þar að
auki verður hádegisverður í boði fyrir aðeins 700 krónur (súpa og
„fiskitvenna“ – lúða og skötuselur), og þríréttaður kvöldverður með  
kaffi
fyrir 3.000 krónur (sjávarréttasúpa, kjúklingabringa og eftirréttur).  
Þeir sem vilja
skemmta sér fram á rauða nótt geta gist á Hótel
Keflavík og er þar hagstætt tilboð að fá fyrir ráðstefnugesti. Nánari
upplýsingar um það fást með fyrirspurn á netfangið
sigrun at hotelkeflavik.is eða síma 420-7000.

Helstu styrktaraðilar ráðstefnunnar eru: Reykjanesbær, Byggðasafn
Reykjanesbæjar, Iceland Express, menntamálaráðuneyti og  
utanríkisráðuneyti.


Með kveðju fyrir hönd undirbúningsnefndar,

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh








More information about the Gandur mailing list