[Gandur] Landsbyggðarráðstefna

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Wed Feb 15 08:55:36 GMT 2006


Kæru þjóðfræðingar,

nú er komið að hinni árlegu landsbyggðarráðstefnu. Hér að neðan er að  
finna dagskrá auk upplýsinga um skráningu
og annað sem máli skiptir. Fjölmennum á ráðstefnuna, skemmtum okkur  
vel í
bítlabænum og njótum fróðlegra erinda um dægurmenningu og íslenska
rokksögu.

Hikið ekki við að hafa samband ef spurningar vakna, og vinsamlegast  
skráið
ykkur fyrr en seinna, það gerir allt skipulag svo miklu auðveldara.
___

„Gaman er að koma í Keflavík“. Landsbyggðarráðstefna
Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Sagnfræðingafélags Íslands og heimamanna,
Duus-húsum í Reykjanesbæ, laugardaginn 4. mars 2006.

08:00	Rúta frá Nýja Garði
09:00-10:30	Kynnis- og fræðsluferð um Keflavíkurflugvöll
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, rekur þær breytingar  
sem
orðið hafa á umsvifum þess undanfarin ár

10:30-10:45	Setning ráðstefnunnar, Duus-húsum
10:45-12:15	 „Kaninn“ og þjóðin.
1.	Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur: Dægurtónlist, erlend áhrif,
bandaríski herinn og „Völlurinn“
2.	Gestur Guðmundsson félagsfræðingur: Kanaskríll í  Keflavík:
Ameríkanisering, þjóðmenning og sjávarselta í íslensku rokki
3.	Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja: „Enda komu  
þeir
færandi hendi.“ Áhrif bandaríska varnarliðsins á mannlíf á Suðurnesjum,
neyslu, dægurmenningu, málfar og samskipti kynjanna

12:30-13:30	Hádegisverður í Duus-húsum

13:30-15:00	Sagnir og söfn á Suðurnesjum.
4.	Sigrún Jónsdóttir Franklín þjóðfræðingur og leiðsögumaður:  
Sagnamenning
á Suðurnesjum
5.	Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri: Samtíminn í byggðasöfnum
6.	Helgi Hólm: Sögulegar heimildir af heimaslóðum. Blaðaútgáfa Faxa í  
65 ár

15:00-15:30	Kaffihlé

15:30-17:00	Innreið og útrás íslenskra dægurlaga.
7.	Karl Jóhann Garðarsson sagnfræðingur: „Óþjóðhollir starfshættir“. Líf
og dauði menningar og frelsis með „innreið“ erlendra dægurlaga.
8.	Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur: „Þau minna á fjallavötnin
fagurblá“: Um dægurlagatexta og samfélag á Suðurnesjum
9.	Þór Tjörvi Þórsson sagnfræðingur: Vegir liggja til allra átta.  
Hljómar
og upphaf útrásar íslenskra tónlistarmanna

17:00-18:00	Móttaka í boði Reykjanesbæjar
18:00-21:00	„Kvöldin þar þau eru engu lík“. Kvöldverður í Duus-húsi, og
keflvískir tónlistarmenn taka vonandi lagið undir borðum
c. 21:00-21:45	Rútuferð í bæinn



Skráning á ráðstefnuna er hafin og stendur til þriðjudagsins 28.  
febrúar.
Þátttaka í ráðstefnunni er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Fargjald í rútu fram og til baka, auk kynnisferðar um  
Keflavíkurflugvöll,
er þúsund krónur og greiðist í rútu að morgni ráðstefnudags. Áhugasamir
skrái sig hjá Aðalheiði Guðmundsdóttur, adalh at hi.is (868-0306) eða  
Guðna Th. Jóhannessyni, gudnith at hi.is  (895-2340), og taki fram hvort  
þeir skrá sig aðeins á ráðstefnuna eða
rútuferðir sömuleiðis.
	Ókeypis kaffiveitingar verða í boði á meðan ráðstefnunni stendur.  
Þar að
auki verður hádegisverður í boði fyrir aðeins 700 krónur (súpa og
„fiskitvenna“ – lúða og skötuselur), og þríréttaður kvöldverður með  
kaffi
fyrir 3.000 krónur (sjávarréttasúpa, kjúklingabringa og eftirréttur).  
Þeir, sem vilja skemmta sér fram á rauða nótt, geta gist á Hótel
Keflavík og er þar hagstætt tilboð að fá fyrir ráðstefnugesti. Nánari
upplýsingar um það fást með fyrirspurn á netfangið
sigrun at hotelkeflavik.is eða síma 420-7000.

Helstu styrktaraðilar ráðstefnunnar eru: Reykjanesbær, Byggðasafn
Reykjanesbæjar, Iceland Express, menntamálaráðuneyti og  
utanríkisráðuneyti.

Með kveðju fyrir hönd undirbúningsnefndar,

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh








More information about the Gandur mailing list