[Gandur] Fw: [Fwd: Er til rétt saga? Um kanón í sagnfræði og sögukenns lu]

runa at thjodminjasafn.is runa at thjodminjasafn.is
Sun Dec 3 17:14:47 GMT 2006


----- Forwarded by Rúna K. Tetzschner/Þjóðminjasafn/IS on 03.12.2006 17:14 
-----


Guðni Thorlacius Jóhannesson <gudnith at hi.is>
01.12.2006 16:56
 
        To:     runa at thjodminjasafn.is, soguslodir at hi.is, 
ritstjorn at kistan.is
        cc: 
        Subject:        [Fwd: Er til  rétt saga? Um kanón í sagnfræði og 
sögukenns lu]




Er til rétt saga? Um kanón í sagnfræði og sögukennslu

Hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands, Þjóðminjasafni Íslands,
þriðjudaginn 5. desember kl. 12:05-12:55.

Sagan snýst ekki bara um að finna sannleikann um fortíðina heldur líka að
velja þau viðfangsefni og atriði sem eru þess virði að segja sannleikann
um. Í erindinu er sagt frá viðleitni manna til að festa slík atriði í
sessi með valdboði, umvöndunum eða gylliboðum. Einkum verður fjallað um þá
sögu sem kennd er í skólum og hægt er að stýra og ákveðin dæmi tekin frá
Íslandi, Svíþjóð, Danmörku og Hollandi en í tveim síðastnefndu löndunum
hefur nýlega verið gefin út kanón, þ.e. skrá yfir skylduga atburði,
persónur og aðstæður sem allir þurfa að þekkja. Loks verður kynntur kanón
um rétta íslenska sögu.

Þorsteinn Helgason er dósent í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands,
höfundur námsbóka og heimildamynda fyrir sjónvarp og stjórnar nú norrænni
rannsókn á námsefni í sögu.




Guðni Th. Jóhannesson
Hugvísindastofnun/Centre for Research in the Humanities
Háskóli Íslands/University of Iceland
101 Reykjavík
ICELAND
Sími/tel: +354 525 4716
Farsími/mobile: +354 895 2340
Fax: +354 525 4410

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061203/5126a64d/attachment.html


More information about the Gandur mailing list