[Gandur] Vantar Aðstoð með Verkefni :-)

Gunnella Thorgeirsdottir gunnella at yahoo.com
Wed May 25 12:21:54 BST 2005


Sælt veri fólkið :-)

Gunnella heiti ég og er Þorgeirsdóttir. Ég er sem
stendur nemi á masters stigi í þjóðfræði við Sheffield
háskóla í Bretlandi og myndi langa að biðja ykkur um
greiða ef að það væri hægt. Svo er mál með vexti að ég
er núna að vinna lokaverkefnið mitt hérna og því var
að setja spurningarlista þess að lútandi á netið.

Spurningarlistinn byggist upp af spurningum um venjur,
siðum og hjátrú tengdum getnaði, meðgöngu og fæðingu. 
Ef að þið gætuð hugsanlega séð ykkur fært að gefa mér
20-30 mínútur af tíma ykkar og svara könnuninni þá
væri það virkilega vel þegið!! 

Spurningarlistinn hentar öllum, ekki einungis þeim sem
fætt hafa börn eða þekkja til mikils magns hjátrúar,
heldur öllum þeim sem einhverntíman hafa verið
viðloðandi meðgöngur vina eða ættingja, sem eru að er
ég tel velflestir.

Ef ég mætti einnig gerast svo frek að biðja ykkur um
að áframsenda þetta bréf ef þið vitið til einhvers sem
hefði áhuga á að svara slíkum spurningalista, býr yfir
mikilli þekkingu á efninu að ykkar mati eða ef þið
hafið aðgang að net listum sem þið teljið að mynduð
taka vel í svona fyrirspurn. Til að koma í veg fyrir
of-póstun þá tek ég það fram að ég hef þáþegar sent
beiðni á "publore" og "Newfolk" og fengið mikla svörun
þaðan.

Vona innilega að þið sjáið ykkur fært að svara,
spurningarnar eru að finna hér:
http://webdbdev.ucs.ed.ac.uk/ddm/2005/hawk/folklore/index.cfm

Með kærri þökk og kveðju,

Gunnella Þorgeirsdóttir
gunnella at yahoo.com


__________________________________________________
Do You Yahoo!?
Tired of spam?  Yahoo! Mail has the best spam protection around 
http://mail.yahoo.com 


More information about the Gandur mailing list