[Gandur] Draugagangur um Kjalveg- síðust förvöð að skrá sig!

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Fri Jul 1 14:28:42 BST 2005




Kæru félagar!

Þeir sem hafa hug á að koma með í þessa dýrðlegu gönguferð, verða að vera
búnir að skrá sig á lista fyrir næstkomandi sunnudag. Ganga þessi er
kjörið tækifæri til að skreppa upp í sveit og upplifa í senn ægilegan
draugagang, eins og hver þjóðfræðingur hlýtur að vera æstur í að upplifa,
og guðdómlega náttúru.
VIð hvetjum því alla þjóðfræðinga,
þjóðfræðinema, skyldmenni og vini að koma með um Kjalveg hinn forna. Lagt
verður af
stað frá Odda kl. 9 þann 9. júlí og komið til baka seint þann 10.  Gengið
verður með Hvítárnesdraugnum fyrsta spölinn frá skálanum við Hvítárvatn og
sem leið liggur í fótspor þeirra Reynistaðabræðra norður með Hrútfellinu,
framhjá
Kjalfelli og í Þjófadali.
Ferðin tekur tvo daga og gist er i skálanum við
Þverbrekknamúla. Þar hefur okkur tekist að fá gistingu fyrir 16 manns
þannig að fyrstir sem panta fyrstir fá. Upplýsingar um útbúnað og nánari
ferðalysingu (ef þess þykir þörf) fæst hjá undirritaðri
Með kveðju og góðum óskum Kristín Einarsdóttir s.6983105

Lauslegur útbúnaðarlisti:
húfu og vettlinga
vatnsbrúsi
nestisbox (nesti fyrir daginn)
göngusokkar
Gönguskó
göngubuxur (ekki gallabuxur)
útivistarnærföt - a.m.k. bolur - (ekki bómull)
flíspeysa/ullarpeysa
regngalli (tvískiptur)
svefnpoki
tannbursti/tannkrem/þvottapoki/lítið handklæði/sápa
aukasokkar
auka nærföt
plástur
aukabolur
brauð
álegg
musli
swiss miss 4 bréf (notað út á muslið)
pasta eða annar matur







More information about the Gandur mailing list