[Gandur] Skrifstofuherbergi til leigu frá 1. febrúar

Vilborg Davíðsdóttir vilborg at snerpa.is
Wed Jan 21 13:28:48 GMT 2004


Herbergisfélagi óskast í 15 fermetra skrifstofuherbergi í Kvennagarði, sem
er til húsa á 4. hæð í Kjörgarði við Laugaveg 59.  ADSL-tenging fylgir, sem
og aðgangur að eldhúsi, snyrtingu, setustofu og góðum félagsskap.   Auk þess
sem mögulegt er að fá lítinn sal leigðan á hæðinni eftir þörfum. Húsaleiga
(ADSL, þrif og Securitas-læsing innifalin) er um 12.000 krónur á mánuði. Í
Kvennagarði eru til húsa meðal annarra tímaritið Vera, Kvennakirkjan,
Fjölmenning, sálgreinir, félagsráðgjafi og undirrituð, sem gefur nánari
upplýsingar.

Vilborg Davíðsdóttir
rithöfundur og þjóðfræðinemi
vilborg at snerpa.is
hs. 5627218
gsm. 6950965




More information about the Gandur mailing list