[Gandur] Píramídarnir - Listamannsspjall

Soffía Karlsdóttir soffiaka at rvk.is
Wed Apr 21 13:21:20 BST 2004


LISTASAFN REYKJAVÍKUR ? ÁSMUNDARSAFN
Píramídarnir - Listamannsspjall sunnudag 25. apríl kl. 14.00

Guðný Guðmundsdóttir er síðust þriggja listamanna til að sýna verk sín í
sýningaröð ungra listamanna, Píramídunum, í Ásmundarsafni. Sýningu hennar
lýkur 2. maí en næstkomandi sunnudag kl. 14.00 mun Guðný ræða verk sín og
skoða sýninguna ásamt sýningargestum.


Ásmundarsafn er opið daglega í apríl frá kl. 13-16 en frá og með 1. maí er
opnunartíminn frá kl. 10-16.


 Einn aðgangseyrir gildir samdægurs í hús Listasafns Reykjavíkur;
Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn.





More information about the Gandur mailing list