[Gandur] ...og enn er reimt á Kili

kriste@hi.is kriste@hi.is
Thu, 19 Jun 2003 11:09:18 -0000 (GMT)


Góðan daginn
Hin árlega draugarannsóknarferð þjóðfræðinga og aðstandenda þeirra verður
farin helgina 28.-29. júní. Farið verður með langferðabifreið kl. 9 frá
Langholtsvegi 115 þann 28. og ekið í Hvítárnes, þaðan er gengið í
Þverbrekknamúla og gist þar. Daginn eftir er gengið áleiðis að
Hveravöllum, þar sem langferðabifreiðn bíður okkar og ekur göngumóðum
aftur á Langholtsveginn. Nánari upplýsingar gefur Kristín í síma 5882674
eða 6983105. Vinsamlega skráið ykkur á netfangið kriste@hi.is eða í síma
6983105
Bestu kveðjur Kristín